Útihlaup

Mæli alveg alls ekki með því að setja niður í fyrirlestrarsal í skólanum rétt rúmum 30mínútum eftir að maður skrölti fram og til baka á hlaupabrautunum til að reyna að ná mjólkursýrunni úr lærunum.
Tók sumsé í fyrsta skiptið í ár æfingu úti á velli, veðrið bara alveg ágætt, rétt tæpar 10°C, sól og smá gola bara, innanhúshöllin líka full af einhverjum krakkagríslingum þannig að þurfa að hlaupa inni og sviga á milli þessara greyja var ekkert alveg að lokka þannig að útibrautin varð fyrir valinu.

Finnst reyndar alltaf alveg merkilega erfitt fyrstu útiæfingarnar eftir innanhústímabilin þar sem allt virkar einhvernveginn svo hrikalega langt og erfitt, þessvegna bara fínt að byrja nógu snemma og venja sig fyrir keppnistímabilið. Æfingin í dag var reyndar ekkert sú besta í heimi, 1x450m, 15mín hvíld og svo 4x200m með 3mín hvíld. Hrikalega þungur 450m sprettur og steindrapst svo í síðasta 200m sprettinum en æfingarnar undanfarið setjast alveg rosalega í lærin á mér núna, sérstaklega mánudags- og þriðjudagsæfingarnar, refsað vel núna fyrir að hafa misst svona mikið af hlaupum og lyftingum í haust.

Annars bara allt gott að frétta og ef veður leyfir að þá hleyp ég 3xsplittaða 400m spretti úti á velli á laugardaginn, annars brekkusprettir :)



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Apr 10, 2008

Klukkan
20:34

Flokkur
Frjálsar
Íþróttir

Fjöldi athugasemda: 0

local