Liverpool komnir Áfram

Nefndi hérna aðeins fyrr í vetur að einn bekkjarfélagi minn lenti í því að vera tekinn af löggunni fyrr í vetur þegar hann hjólaði á móti rauðu og fékk einhverja 15.000 ísl. króna sekt, náttúrlega ekki alveg það skemmtilegasta í heimi en við amk búnir að gera alveg helvíti mikið grín af honum enda alveg ömurlegt að lenda í þessu. En þetta er víst bara hreinlega ekki búið því að hann fékk fyrir stuttu bréf sent heim þar sem að það er víst verið að spá í að taka ökuskírteinið af honum fyrir þetta, senti eitthvað mótmælabréf til þeirra og situr núna heima með krosslagða fingur og vonast til að þetta verði lagt niður. Ætti að kenna fólki að ekki HJÓLA á móti rauðu...

Er ekki verið að grínast í mér... á meðann ég skrifaði þennann texta fór Liverpool leikurinn úr 2-1 í 2-2 og strax eftir það í 3-2 !! ef ég fæ hjartaáfall að þá er það þessum leik að kenna !

UPDATE: JÁÁÁÁÁÁ, djöfulsins snilld, Liverpool komnir í undanúrslitin í meistaradeildinni eftir að hafa unnið Arsenal núna í kvöld 4-2!! næsta fórnalamb á listanum er Chelsea :)



1 Athugasemdir
Sigga R
Apr 09, 2008, 01:04
Það er gott að mínum manni líður vel núna.. Áfram Liverpool.....
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Apr 08, 2008

Klukkan
21:56

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 1

local