Þið megið kalla mig vondann og latann, en djöfulli sem ég er ekki að nenna í afmælispartý í kvöld, ok, ef þetta væri svona venjulegt afmælispartý hérna í bænum, ekkert mál, en einn félagi minn flutti úr bænum fyrir einhverju síðann og í annann bæ hérna cirka hálftíma fyrir utann og ég er bara gjörsamlega ekki að nenna að mæta þar sem að ég hef ekki hugmynd hvar nákvæmlega hann á heima í bænum, bara vjézen að komast þangað, það er rigning úti og ég er drulluþreyttur eftir æfinguna í dag.
En svona til að vera ekki alveg ömurlegur að þá mæti ég þangað og sé svo alveg til hve lengi ég nenni að vera þar, er eiginlega bara í liggja-uppí-rúmi-og-glápa-á-góða-myndarfíling eins og staðan er núna, æ mig aumann :(

Fín æfing annars í dag, 8x200m (3mín hvíld) þar sem ég mætti langt frá því að vera ferskur í fótunum, ein vika í viðbót og svo verður það róleg vika. Byrjaði örlítið of hratt eins og venjulega, fannst þetta vera alveg hálfómögulegt eftir 2 spretti þar sem ég var eitthvað hrikalega þreyttur í lærunum en hafði þetta af og náði fínum síðasta spretti amk:

24.9 - 25.9 - 25.4 - 25.3 - 25.7 - 25.5 - 25.7 - 24.9 = 25.4 meðalhraði.

Djöfulli sem það verður gott með algjöra hvíld á morgun !!



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Mar 29, 2008

Klukkan
15:50

Flokkur
Íþróttir
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 0

local