á lífi og..... páskafrí :)

Ekki komin nógu löng blogg pása núna ?

Bara búið að vera í rauninni nóg að gera hjá mér núna þessa vikuna enda prófvika og því lítið að blogga um og hef reynt að fókusera mest á að læra svona inn á milli æfinganna og því hvorki nennt né haft eitthvað til að blogga um.

En síðustu 2 daga hef ég basicly setið frá 09:00 á morgnanna til miðnætis með heimapróf í einum áfanganum og þá bara með pásu þá þegar ég fór á æfingu. Kláraði þetta í gærkvöldi og skilaði í morgun rétt tæplega 3000 orða umfjöllun um allt og allt sem við höfum verið að gera í þessum áfanga í vetur, fyrsta skiptið sem ég hef haft heimapróf þannig að vona að maður hafi gert þetta nokkurnveginn eins og kennarinn vill hafa það, væri amk ógeðslega svekkjandi að ekki klára þetta eftir alla þessa vinnu sem fór í þetta....

En núna bíður mín þá sumsé 2ja vikna páskafrí, reyndar með einu upptökuprófi í seinni vikunni þannig að ég mun bara chilla hérna í gautaborginni yfir páskana, æfa eins og vitleysingur og læra svona þess inn á milli auk þess að betrumbæta þessa blessuðu síðu mína, fæ bara aldrei nóg af því enda alltaf hægt að bæta eitthvað :)

Var annars alveg virkilega næs á þriðjudagskvöldið, eftir prófið í hinum áfanganum þegar ég, Jonas og Marcus, tveir æfingafélagar mínir fórum heim til mín eftir þriðjudagsæfinguna, elduðum okkur alveg hrikalega stóra feita hamborgara og horfðum svo á Liverpool slá Inter út úr meistaradeildinni, dagurinn gat bara hreinlega ekki endað mikið mun betur.

Æfingarnar ganga annars bara alveg ágætlega, finnst ég bara ennþá vera svona hálf úthaldslaus og á alveg voðalega erfitt með að hlaupa fallega þegar ég hleyp ekki á hámarkshraða eða 90+% hraða, verð greinilega að vinna í því almennilega núna næstu vikurnar en tók í gær 2x450m + 2x3x200m, 15mín hvíld og 3mín á milli 200m með 12mín hvíld á milli seríanna, 450m eiga í rauninni bara að vera nokkuð þægilegir og 200m sprettirnir eiga að vera þannig að fyrsti í hverri seríu á að vera hægastur og síðasti hraðastur:

450m:
64.7s (28 - 57.4, á 200m og 400m), of hægir fyrstu 200m og illa hlaupið.
63.2 (27.4 - 55.8), tæknilega séð miklu betri sprettur
Báðir mjög þægilegir og engin mjólkursýra.

200m:
25.7 - 25.5 - 24.8 : voðalega þægilegt bara nema alltof spenntar axlir og hendur
25.5 - 25.7 - 25.8 : fannst ég vera að hlaupa annann sprettinn of hratt þannig að ég hægði aðeins of mikið á mér síðustu 50m þannig að hann varð hægari en sá fyrsti, dó svo hreinlega síðustu 80m í síðasta sprettinum.

Merkilegt nok samt að ég hafði meiri mjólkursýru í triceps á hægri hendinni heldur en í fótunum sem hlýtur bara að segja að það er eitthvað sem ég er ekki alveg að gera rétt .... !

En var samt betra en í síðustu viku þannig að þetta er á réttri leið og miðað við hvað ég hljóp vel á mánudaginn að þá finnst þetta allt samann hérna, bara fá þetta í hvert hlaup á hverri æfingu :)

Annars er æfingaplanið örlítið breytt núna miðað við fyrir jól og síðasta ár þar sem að ég æfi núna í 4 vikur og tek eina viku rólegri viku og mun gera það fram að sumri miðað við áður þegar ég æfði 3 vikur og tók svo eina rólega, missti af slatta af vikum fyrir jólin þannig að það verður allt samann bætt upp núna :)

En núna er málið að fara að vaska upp, ekki verið mikið um það síðustu dagana þar sem ég hef setið fyrir framan tölvuna og skrifað þetta heimapróf, étið, og haldið áfram að skrifa osfrv.

Later folks



2 Athugasemdir
Sigga R
Mar 14, 2008, 18:34
Ég hélt að þú myndir læra, æfa einsog vitleisingur,,og borða páska egg ??
Ertu nokkuð farinn að borða það Páskadagur er ekki fyrr en 23.mars.
Mar 14, 2008, 20:07
hahaha, nei ekki enn því miður, er náttúrlega alveg með alla þessa hátíðardaga á hreinu og var alveg viss um að páskadagur væri núna á mánudaginn, ágætt kanski að þú leiðréttir mig með það en gífurleg vonbrigði þar sem ég þarf að horfa á páskaeggið í 1.5vikur í viðbót við þessar 2.5 sem eru nú þegar liðnar :(
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Mar 14, 2008

Klukkan
11:09

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 2

local