Fyrsta og síðasta vikan

Bara 1 dagur eftir af af skólanum núna þessa önnina + þá prófvikan að sjálfsögðu, vorum með fyrirlestur í gær þar sem við kynntum verkefnið sem við vorum að vinna í einum kúrsinum og gekk það bara alveg ljómandi vel, enda enginn annar en ég sem ákvað að taka þetta bara í mínar hendur og sjá um þetta bara, semog að fara yfir þetta allt samann með kennaranum í dag, ekki mörgum öðrum treystandi úr hópnum mínum því miður....

Bara eitt lab eftir á morgun, klára það á eftir og þá tekur bara próflærdómurinn við + að horfa á HM í frjálsum :) verður virkilega spennandi á morgun en hún Lena æfingafélagi minn hleypur 60m undanrásir uppúr hádeginu og allt nottla sýnt í beinni þannig að maður verður alveg á tánum við að horfa á þetta, væri alveg virkilega virkilega gamann ef hún kæmist í undanúrslitin... krosslagðir fingur fyrir henni á morgun :)

Morgundagurinn líka alveg planaður eftir því að hún komist í undanúrslitin, lab dæmið á morgun á milli 08:00 - 10:00, út að hlaupa í klst, horfa á hlaupið, drífa sig og taka restina af æfingunni niðri í höll og vera kominn heima aftur og horfa á undanúrslitin uppúr fimm leytið, eftir það, próflærdómur.

Já byrjaði sumsé að æfa aftur þessa vikuna eftir algjöra vikuhvíld frá æfingum, byrjaði á lyftingunum á mánudeginum og tók nokkra spretti (2x4x100m m/3mín hvíld) á þriðjudeginum, var víst ákveðið að taka lyftingarnar á undan fyrstu vikuna þannig að sprettirnir yrðu ekki of hraðir....

En finnst ég bara ekki hafa verið að hlaupa vel hinsvegar, hvorki á þriðjudeginum né í dag þegar ég var farinn að þreytast pínu, reyndar of létt æfing í dag fannst mér, 2x450m og fara í gegnum 400m á 57s.... með 15mín hvíld og svo 3x200m með 3mín hvíld á 26.0-25.5-25.0, og þrátt fyrir að hlaupa ekkert spes vel í dag hljóp ég á:

450m: 65.4 (27-57.5 á 200m & 400m) aðeins of hratt fyrstu 200m og hægði of mikið á mér seinni 200m.
450m: 63.5 (28-56) jafnt og fínt og miklu betra hlaupið en fyrri
3x200m: 25.? - 25.5 - 24.5 (mistókst aðeins tímatakan á fyrsta)

Var ekkert dauður neitt eftir þetta en fannst ég ekki hlaupa neitt spes samt í síðasta 200m þannig að í næstu viku bætum við einu setti við af 3x200m og ætla að hlaupa 450m aðeins hraðar (55-56s í gegnum 400m) þá held ég að þetta verði bara fínt.

Þessi mynd er bara of frábær til að ekki hafa hana með hérna :)



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Mar 06, 2008

Klukkan
17:25

Flokkur
Frjálsar
Íþróttir
Almennt

Fjöldi athugasemda: 0

local