Ljóskan ég

okej, hvað er það sem maður þarf að muna að taka með sér, númer 1, 2, 3 þegar maður er á íslandi?

Já ég get sagt ykkur það, TAKA MEÐ SÉR LYKLANA AÐ ÍBÚÐINNI SINNI !!!

kom sumsé heim í gær, í góðum fíling, vel þreyttur, leytaði í vösunum, töskunum og útum fucking allt, hringdi svo í Fanney systur og komst þá að því að lyklarnir voru amk ekki týndir, bara í öðru landi. Búinn að hringja í allt og alla til að reyna að fá samband við einhvern hjá stúdentaíbúðunum en bara enginn sem svarar í helvítis símana þar, þakka amk Sandin og Bea fyrir að leyfa mér að gista hjá þeim í nótt, hafði það reyndar svo gott þar að ég efa að ég vilji komast inn í íbúðina :)

Ragnar í sínu eigin ljóskuveldi

-- update --
Sit í skólanum, klukkan er 15:50 og er ennþá heimilislaus, búinn að reyna að hringja í öll möguleg númer, skrifstofan hjá þeim lokuð í dag, búinn að tala inn á 2 símsvara, senda 3 e-mail og hringja í öll þessi númer á 20mín fresti... this shit is so not looking good !



2 Athugasemdir
Silja Úlfars
Feb 26, 2008, 16:19
hahaha Veistu Raggi ég held að ljóskur klikki ekki á svona atriðum ...

hehe massa fyndið en örugglega mjööög pirrandi!
Feb 26, 2008, 19:39
hehe, já þú hefur trú á ykkur ljóskunum ;)

En jájá ég mun ábyggilega hlægja að þessu á morgun (ef ég kemst inn þá) en akkúrrat núna er þetta bara pirrandi...!!
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Feb 26, 2008

Klukkan
08:22

Flokkur
Ljóskan ég

Fjöldi athugasemda: 2

local