Meistaramótið

Jæja, kominn út aftur eftir bara alveg hið ágæsta gengi um helgina.

Var búinn að skrifa um 400m hlaupið sem ég er alveg gífurlega sáttur með, en hljóp svo einnig 200m á sunnudeginum þar sem ég náði einnig að bæta mig smá.

Á bara helvíti erfitt með að hlaupa 200m innanhús þar sem mér finnst beygjurnar henta mér alveg gífurlega illa, en amk, komu 2 smá bætingar þar.

Byrjaði með riðlunum þar sem ég hljóp á 22.50s og bætti mig úr 22.73s og hljóp svo úrslitin á hinum gífurlega svekkjandi 22.49s sem dugði í 3-4 sætið einungis 1/100s frá öðru sætinu.... svekkelsi það

En núna þá komnar amk 1.22s bæting í 400m og 61/100s bæting í 200m núna í vetur, á eitt 400m hlaup eftir sem er núna um helgina hérna í Gautaborginni og er svo að spá í hvort ég mæti heim á bikarinn þarnæstu helgi, gæti þá hlaupið mitt fyrsta 60m hlaup + 200m, er orðinn jákvæðari á að mæta þangað eftir daginn í dag, ákveð það endanlega núna á næstu dögum.

En þreyttur núna og vel stífur þannig að málið að fara að sofa held ég, góða nótt elskurnar mínar!



3 Athugasemdir
SR
Feb 11, 2008, 23:13
Góða nótt elskan mín. Heyrumst á morgun.
Arnar Már
Feb 12, 2008, 10:53
Sjáumst á bikar ;)
Feb 12, 2008, 17:32
Til hamingju með bætingarnar ;o)
Er ekki bara málið að halda þessu áfram.

(skil samt ekki alveg hvernig þú nennir að fljúga svona oft á milli, en það er ágætt ef þú nærð að bæta þig í leiðinni)

:o)
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Feb 11, 2008

Klukkan
22:48

Flokkur
Íþróttir
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 3

local