Álag

Já ekki frá því að ég sé að gera útum allt heilabúið mitt akkúrat núna, því að ég þarf ekki bara að muna eftir að kaupa peruna í stofuna (2 vikur komnar) að þá mundi ég alltíeinu áðann eftir því að ég henti víst síðasta svörtusokkaparinu mínu í síðustu viku, þannig að ég þarf eiginlega virkilega mikið að muna eftir því að kaupa mér líka svarta sokka, því eins og allir vita er það nottla alveg out að fara í hvítum sokkum á lífið, hvað þá hvítum íþróttasokkum sem eru basicly einu sokkarnir sem ég á í mómentinu, shææææt. En reyndar er ég samt búinn að redda þessu ljósavandamáli í bili, þar sem að lampinn sem ég notaði sem backup eftir að stofuljósið fór að hann þarna *hóst* var víst með jafnstóra peru og ég þurfti í stofuna *hóst* þannig að ég var víst ljósalaus í viku að hálf óþörfu, en hún bara ekki alveg nógu sterk þannig að ég þarf að kaupa nýja, ástand og vjézen. En planið mitt að gera ekkert annað en að tölvunerdast, glápa á imbann og læra er víst alveg að fara til helvítis þar sem Vilmar er víst með fest í kvöld þannig að maður kíkir nú þangað, en stefnan samt ekki að fylgja með í bæinn þar sem ég er að fara að vinna í fyrramálið og er bara ekki að nenna að fara þreyttur þangað, gert það of oft hingað til og eyðileggur bara alveg allann daginn. En annars alveg helvíti ljúft veður í dag, sennilega rúmlega 15°C sól og næstum logn, kíkti í tilefni þess á live webcameruna frá króknum heim og grét það ekkert að vera hérna úti núna:


3 Athugasemdir
Arndís María
Sep 23, 2005, 19:19
þessi mynd lítur rosa vel út bara....eg held að ég gráti ekkert heldur að vera í RVK...
sr
Sep 24, 2005, 11:36
ég held þú ættir að líta í vebcameruna núna ... Snókoma og aaaaaalhvít jörð... Enda Laufskálaréttadagur,,,,,
Sep 24, 2005, 11:57
Ef madur hangir á netinu nógu lengi tá endar madur alltaf á einhverju bloggi sem madur kannast við, en eg er sammála.. ég sakna tess ekki ad vera heima á krók núna.. hér er einmitt sól og bíða og stuttbuxna veður [8D]
Kv. úr ennþá syrði og hlýrri hluta Svíþjóðar, Margret Silja
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Sep 23, 2005

Klukkan
11:33

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 3

local