Sverige

Stóð hálf sveittur í gær þegar ég stakk lyklinum í hurðina að íbúðinni minni í gær því að lets face it, ég hef ekkert verið sá duglegasti síðustu ár við að muna að henda öllu sem rotnað getur þegar ég hef verið að fara heim um jólin, því gífurlega mikill léttir þegar mér mætti bara þessi fína lykt af nákvæmlega engu :)

Jólafríið leið alveg ótrúlega hratt og fannst ég rétt vera nýkominn þegar ég var farinn aftur, en samt alltaf viss léttir þegar maður er kominn út aftur, þá sérstaklega æfingalega séð.

Ferðalagið heim gekk bara alveg ljómandi fínt, kom lítið sem ekkert uppá og svaf bara alveg góðann hluta leiðarinnar og fann meira að segja gleraugu sem mig alveg dauðlangar í og væru alveg verðugur arftaki minna 9ára gömlu gleraugu sem eru btw týnd og hafði í rauninni ekkert notað þau af viti í 5 ár, kanski kominn tími til að gefa linsunum smá pásu einhverja tíma dagsins ? Oakley virðast bara alltaf standa fyrir sínu. 

Adam Tensta er maðurinn í spilaranum þessa dagana, check it out !



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jan 04, 2008

Klukkan
08:08

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 0

local