Einn tími til eða frá

Var ég ekki búinn að vera röfla kvarta og kveina einhverstaðar yfir því að lestin mín færi klukkan 06:00 núna á morgun? Náði í lestarmiðann í gær og sá þá bara að ég hafði víst haft svona helvíti rangt fyrir mér þar sem að lestin fer af stað 05:12 = ég þarf að vera kominn á fætur svona cirka 03:30 til að geta fengið mér að éta og komist niður á lestarstöð án alls stress...

Síðsta prófið annars núna á eftir kl 14, er að reyna að panic læra ekki núna svona síðustu tímana fyrir prófið (Cryptographt), er samt smá stressaður, er helvíti erfiður áfangi en mjög skemmtilegur þannig að maður vill nú alveg helst standa sig vel í þessu blessaða prófi, allir að hugsa fallega til mín á milli 13-17 á íslenskum tíma í dag.

En spurning að fara að koma sér af stað til kíropraktorsins núna, láta hann taka bakið svona einu sinni enn í gegn fyrir jólin, henda svo í 2 þvottavélar og lesa í rólegheitunum í cirka 2klst fyrir prófið...



2 Athugasemdir
SR
Dec 20, 2007, 13:37
Sendi þér góðar hugsanir og bæn um gott gengi í prófinu.
sr
Dec 20, 2007, 13:41
frjálsíþróttamót 22.des á króknum...
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Dec 20, 2007

Klukkan
07:43

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 2

local