1/2

 Eitt próf búið, eitt próf eftir og eftir tvo sólarhringa eru 50% líkur á því að á þessum tímapunkti stend ég einn á götum Stockholm að leita að áttinni að Arlanda flugvellinum, og afhverju 50% ? jú hin 50%:in eru líkurnar á því að á þessum tímapunkti mun ég ennþá vera sofandi heima í góða rúminu mínu og þurfi þarafleiðandi að halda jólin "hátíðleg" einn með kaffibolla og sænskum kjötbollum.

Búinn að ákveða að ef ég vakna í tíma að þá ætla ég að gera mitt fyrsta videoblog og skella inná áður en ég legg af stað með lestinni.

28 tímar í að ég geti hætt að læra undir próf og 33 tímar í að ég komist í jólafrí, djöfulli sem tíminn líður hægt í próflærdómnum.

Hvaða idiot ákvað að setja leik Chelsea-Liverpool Ã­ kvöld... oohh verður sumsé ekkert lært á milli 21-23 í kvöld, mínir menn mættu alveg vinna þennann leik, bara fyrir mig, ekki það að manni sé eitthvað mikið sama um þessa keppni (Carling Cup), en alltaf gamann að vinna Chelsea.

Bleeding Love með Leona Lewis er alveg að gera sig í spilaranum í dag.

 



1 Athugasemdir
sr
Dec 19, 2007, 14:53
Vertu duglegur að læra. Hlökkum til að fá þig heim um jólin svo það verður að vera 100% að þú vaknir á réttum tíma.
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Dec 19, 2007

Klukkan
07:52

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 1

local