Tjejdäng

*tjejdäng = þegar stelpa vinnur stráka í einhverju
Djöfulsins munur sem það er að hlaupa í gaddaskóm og racerum, en kíkti á æfingunni í gær í gaddaskó í fyrsta skiptið í haust og planið að hlaupa nokkra spretti ( (2x30, 2x40, 2x60) með sleða, vesti og svoleiðis, 2x60, 2x80, 2x100, 2x120 og 1x150) og hljóp þetta með Lenu vinkonu minni, aldursforsetanum í liðinu (29ára) og sænskur meistari í 100m í sumar.

Alveg magnað hvað hún er fljót fyrstu 30-40m, eða já, amk miðað við mig þar sem ég er ekki alveg beint þessi sprengja fyrstu metrana og átti basicly í hinu mesta bassli með að halda henni fyrir aftan mig þessa fyrstu sprettina.

Eftir 80m skipti ég svo út göddunum fyrir racerana þar sem þetta var nú fyrsta skiptið á göddum, óþarfi að hlaupa of mikið á þeim þá og hljóp þá 100, 120 og 150m sprettina án þeirra.
En svo í síðasta sprettinum, 150m þá ákvað maður nú að vera almennilegur og sleppa henni nokkra metra á undann þannig að þetta yrði góð keppni síðustu 50m, nema hvað að ég sleppti stelpunni náttúrlega alltof langt + að ég fékk þessa hörmulegu fyrstu 20m þannig að ég negli náttúrlega á þetta eins og ég eigi lífið að leysa, enda finnst þjálfaranum mínum ekkert skemmtilegra heldur en þegar stelpurnar vinna strákanna í einhverju, hvað þá í sprettunum og þegar ég á kanski svona 15m eftir að þá átta ég mig á því að ég muni hreinlega ekki ná henni og hleyp síðustu 20m-30m með óp og köll útum allann sal (frá stangastökkvaraþjálfaranum í horninu alveg hinum meginn í höllinni, frá þrí-/há-stökkvurunum fyrir miðjum sal og þjálfaranum mínum ásamt æfingafélögum við marklínuna, allir að öskra nákvæmlega það sama: "TJEJDÄNG" þannig að þið getið rétt ýmindað ykkur hvað það var spennt sig mikið síðustu skrefin, endaði tæpum hálfum metra á eftir henni yfir marklínuna með mjólkursýru í BICEPS og ekki neinsstaðar annarsstaðar í öllum líkamanum :)

Hef sjaldann séð þjálfarann minn glotta jafn mikið eins og þegar ég rölti til hans eftir sprettinn, en annars alveg þrusugóð æfing bara :)



2 Athugasemdir
Ari Guðfinnsson
Dec 11, 2007, 16:12
TJEJDÄNG!!!!!

Hahaha ... þetta er snilldar orð ... hef ekki heyrt það fyrr ... en farðu nú varlega í að gefa stelpunum forskot í framtíðinni. Sérstaklega þeim sem eru betri en þú (í sínum flokki)!!!

TJEJDÄNG!!!!
Dec 12, 2007, 21:08
haha, iss nei nei, næst gef ég henni að sjálfsögðu örlítið meira forskot og vinn að sjálfsögðu :)
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Dec 11, 2007

Klukkan
09:52

Flokkur
Íþróttir
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 2

local