Under pressure and pirring

Held bara hreinlega að minni heili sé bara gerður fyrir afslöppun og rólegheit og er hér með búinn að komast að því að ef ég mæti pirraður og stressaður í próf að þá get ég alveg eins snúið við í hurðinni og labbað heim aftur.

Komst að þessu í dag þar sem ég sat heima og var að reyna að leysa einhver skilaverkefni sem gekk bara ekki neitt og var orðinn alveg vel pirraður á þeim, leit svo á klukkuna og sá þá að ég átti að byrja í tíma eftir einhverjar 5mínútur og þurfti því að stressa út til að koma bara cirka 5-10mín of seint í hann.

Ákvað samt á leiðinni að koma við í einni sjoppu til að kaupa mér eina powerrade flösku þar sem ég hafði í öllu stressinu heima að sjálfsögðu gleymt að taka vatnsflöskuna mína með mér, ekkert mál með það, nema að þegar ég er búinn að strauja kortið og er að fara að slá inn pinnúmerið mitt að þá var það gjörsamlega horfið úr hausnum á mér, fucking kort sem ég nota á hverjum degi, prufaði alveg 2x þar sem ég mundi alveg eina tölu úr því, en endaði með því að ég þurfti að afsaka mig við afgreiðslumanninn og alla hina í röðinni að ég bara hreinlega myndi ekki kóðann og fékk þá að skrifa á kvittunina í staðinn (gamla góða aðferðin).

Fattaði svo þegar ég var komin úr sjoppunni að ég var með kóðann skrifaðann í "leynihólfageymslunni" í símanum, bara ddduuuuhhh, kíkti á kóðann og jú, var með eina töluna rétta amk.

En nóg af því, dreif mig í tíma og komst að því að tíminn byrjaði 15mín yfir þrjú en ekki klukkann þrjú þannig að ég var í rauninni mættur 10mín of snemma.

Rólegheit eiga best við mig !



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Nov 16, 2007

Klukkan
17:19

Flokkur
Ljóskan ég

Fjöldi athugasemda: 0

local