Jólagjöfin í ár

Vá, hve erfitt á það eiginlega að vera að bara nenna að vaska upp 3x á dag smá leirtau?
Alveg ótrúlegt hvað maður þarf alltaf að safna þessu upp í háa hauga, blóta því þriðja hvern dag að það sé ekki til hreint glas til að maður loxins nenni að koma sér í að vaska upp.. oooohhhhh, alveg jafn erfitt að muna að maður átti þvottatíma í gær.

Nr. 1 á jólagjafaóskalistanum mínum í ár er uppþvottavél !

En núna er kominn vetur, djísús hvað það er búið að vera kalt úti síðustu daga og snjóaði svo smápínupons í allann dag, langbrók, here I come...



1 Athugasemdir
Sigga R
Nov 13, 2007, 21:05
Já það er nú mikil munur að búa á Íslandinu góða. Hér er bara + tölur og hiti næstu daga,,,, þangað til að þú lætur sjá þig á Fróni um jólin þá mun kólna einsog venjulega.
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Nov 13, 2007

Klukkan
19:52

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 1

local