Tapað - fundið

Ætli maður geti ekki tekið einn svona hraðakúrs í íslensku 103 um jólin, held að mannig veiti ekki af því að fá upp smá orðaforða aftur.

Lék annars algjöra hetju í skólanum í gær, sátum inní tölvusal með verkefni þegar ég fann eitt peningaveski á röltinu með sjálfum sér, vel troðið af kortum og peningum, cirka 7000kr þannig að ég ákvað að vera góði gaurinn og leitaði upp stelpuna í símaskránni og bjallaði í hana og lét vita að ég hefði fundið veskið hennar.
Hún var reyndar í hálfgerðu sjokki greyið stelpan, bæði það að hafa verið í stressi að leyta að veskinu + að hún vissi ekki að það væru til svona heiðarlegar manneskjur þegar ég sagði henni að það væru fullt ef peningum í því, sá svo að sjálfsögðu strax eftir því að hafa sagt það þar sem ég á nú ekki nema 190kr (íslenskar) inn á debitkortinu mínu í augnablikinu ;)

But hey, einhver verður nú að leika góða gæjann ! 



2 Athugasemdir
Sigga R
Nov 06, 2007, 13:55
Þú þarf ekkert að leika góða gæjann, Þú hefur alltaf verið það. Eða er það ekki.
Arndís María
Nov 06, 2007, 14:43
þú taka íslensku námskeið - af hverju?
hvernig ertu annars í ryggnum?
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Nov 06, 2007

Klukkan
08:24

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 2

local