Kaffibrúsakall

Jæja, fínt að þrusa einhverju smá inn hérna áður en maður fer að reyna að koma sér í að hamast í lærdómnum. Fór í morgun með Elías að kaupa innfluttningsgjöf handa Peter Wigren, komumst eftir nokkur samtöl hingað og þangað að honum vantaði kaffivél þannig að við vorum ekki lengi að skella okkur niður í moll og redda einni græju. En þar sem okkur fannst þetta vera aðeins of lítið að þá fórum við inn í kaffi búð, ómæómæ hvað það er alltaf góð lykt inni í svona búðum og var það sett á mína ábyrgð að velja kaffi handa kútnum þar sem að Elías er ekki ennþá orðinn karlmaður og drekkur eigi kaffi. Held ég hafi fengið að lykta af einhverjum 15-20 tegundum af kaffi þegar ég þurfti hreinlega að segja stopp þar sem ég var gjörsamlega farinn að svitna og engjast af kaffiþörf og gat svo ómögulega valið á milli tveggja tegunda sem ég man alveg ómögulega hvað hétu, jú önnur eitthvað Irish dæmi "OJ IT'S MY ISLAND!!!!" og kom að sjálfsögðu ekkert annað til greina en að ég fengi mér líka eitt stk svoleiðis enda kominn á gjörsamlega versta stig kaffiþarfar eftir að hafa verið þarna inni og því drifið sig heim og skellt beint í vélina og ómæómæ hvað kaffi er nú gott. En ekki nóg með það heldur keypti ég mér líka kaffibrúsa þannig að maður geti tekið smá glögg með sér niður í skóla, enda algjörlega ómögulegt að vera alltaf að kaupa sér kaffi þar allann liðlangann daginn þegar maður getur komið með rammsterkt Gevalia Columbia brygg A'la Ragnar með sér í brúsanum, yeeeaaahhh. En mission helgarinn var nú reyndar í upphafi rólegheit og lærdómur en maður virðist bara hreinlega ekki fá frið því að hið fyrrnefnda Innflutningspartý verður í kvöld og mæting cirka uppúr 7, en næsta helgi krakkar mínir, næsta helgi, verður leeeetiiii....... þangað til annað kemur í ljós


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Sep 17, 2005

Klukkan
12:52

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local