Föstudagur + Laugardagur

Átti alveg mjög spes föstudagskvöld, eða já, föstudag getur maður sagt.

Byrjaði með því að ég fékk símhringingu frá einhverri konu á miðvikudaginn þar sem hún fór að bulla um eitthvað sem á hafði ekki hugmynd um, en talaði eitthvað um catwalk, show og að labba um í fötum frá Björn Borg, hafði þá einhver (einn æfingafélagi minn í djóki) skráð mig hjá þeim, þannig að ég hélt að þetta ætti bara að vera eitthvað model dæmi, sýna föt or some, þannig að ég ákvað bara að slá til og vera með.

Þannig að ég mætti þarna á föstudaginn í góðum fíling og hitti strákana sem ætluðu að vera með í þessu, og var svo farið í gegnum allt þetta dæmi með okkur, komst ég þá að því að þetta var ekki neitt módeldæmi, heldur var þetta einhver "Herra Svíþjóð" keppni, þannig að basicly held ég að ég hefði ekki einu sinni mátt vera með þar sem ég er nú íslenskur ríkisborgari, en þar sem maður var nú mættur þarna ákvað maður bara að hafa gamann að þessu.

Vorum mættir uppúr 4 um daginn og farið í gegnum catwalkið, hvernig við áttum að labba á sviðinu, haga okkur og allt svoleiðis dæmi, fórum svo í make-up, þá meina ég alvöru fucking make-up þannig að maður leit út eins og hin fínasta barbie dúkka, æft eitthvað aðeins meira eða þangað til rétt uppúr 1 um nóttina þegar keppnin fór af stað.

Var alveg góð blanda af gaurum í þessu, 10stk, og svona heldur mismikil alvara í þessu hjá þeim, sumir bara voðalega slakir og bara að hafa gamann, og svo hinir sem voru basicly í þessa 9klst sem við vorum að bíða, alltaf að fixa hárið, make-upið og hafa voðalega miklar áhyggjur af útlitinu.

Síðan uppúr 2 leytið um nóttina var keppnin búin og 3 fyrstu fengu einhver verðlaun og top 2 komust áfram í undanúrslitin, fengum allir líka einhver smá gjafakort (siglingu á milli Helsinki og Svíþjóðar, bara kúl það, + að við fengum að eiga brókina sem við vorum í á sviðinu.

  • Er alveg nokkuð viss um að einn gaurinn þarna hafi verið að reyna við mig mestallt kvöldið.
  • Strákar, ef þið viljið fá suddaathygli á dansgólfinu á skemmtistöðum bæjarins, þá mæli ég alveg eindregið með því að standa fyrst olíuborinn á brókinni uppí á sviðinu, það virkar alveg.
  • Held ég hafi aldrei fengið jafn mörg hrós yfir útlitinu eins og á dansgólfinu eftir keppnina, voða mörgum stelpunum sem fannst að ég hefði átt að vera á top3 :)
  • Í fyrsta skiptið bauð stelpa mér uppá drykk á barnum, en ekki öfugt.
  • Ég komst því miður ekki með brókina alla leiðina heim, þar sem að í sjoppunni fyrir utann skemmtistaðinn voru 2 stelpur sem vildu endilega eiga brókina sem ég og einn annars strákur vorum í á sviðinu, þannig að við kipptum okkur bara úr þeim og gáfum þeim, við lítinn fögnuð kærasta annara þeirra, vona að það sé ekki öryggismyndavél á staðnum....

En þetta var bara annars hin fínasta stemning, þrátt fyrir alla þessa hundleiðinlegu bið eftir því að komast uppá sviðið. Skelli ábyggilega inn einhverjum myndum fljótlega ef ég finn einhverjar á netinu :)

Fór svo í innfluttningspartý í gærkvöldi hjá einum æfingafélaga mínum og, TAKIÐ EFTIR, við fórum í SingStar og ÉG, lélegasti söngvari heims, vann í öllum 3 skiptunum sem ég söng, maður ætti kanski bara að fara að snúa sér að söngnum ??



3 Athugasemdir
Arndís María
Nov 04, 2007, 13:51
hahahah, þetta er bara fyndið:)

þú getur verið olíuborinn söngvari á brókinni....fengir pottþett athygli út á það...:-)
Nov 05, 2007, 14:03
Módel OG söngvari? Á að fara flytja til Hollywood?
Nov 05, 2007, 16:08
Held að það sé alveg málið, Léttklæddi og olíuborni söngvarinn Ragnar does Hollywood er alveg málið !
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Nov 04, 2007

Klukkan
12:55

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 3

local