Komin smá botn í þetta ?

Já, vona að það sé að fara að skýrast eitthvað aðeins hérna með bakið á mér, en hef bara verið alveg hreyfihamlaður á æfingum síðustu vikuna þannig að kirapraktor varð fyrir valinu í dag og bara ekki frá því að hann geti kippt mér í lag, eða vona það, þar sem ég var víst alveg rammskakkur, hægri löppin vel styttri en sú vinstri og allt snúið fram og til baka, gæti alveg útkýrt mitt handónýta bak.
Næsti tími hjá honum aftur á föstudagsmorgun og fer ég bara þangað þar til að ég verð orðinn nógu góður eða ég verð kominn á hausinn þar sem þetta er náttúrlega bara langt frá því að vera ókeypis, eins gott að þetta virki.

Annars byrjaði skólinn aftur í dag, ný önn með nýja áfanga, Cryptography og Programming Paradigms, fer ekkert nánar út í þá en lýst bara vel á þetta og fínt að lesa bara 2 áfanga í staðinn fyrir þrjá eins og síðustu önn.

Enda þetta á smá youtube vídjó sem mér finnst nottla bara vera cool:

 

 



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Oct 31, 2007

Klukkan
21:14

Flokkur
YouTube
Almennt

Fjöldi athugasemda: 0

local