Heroes

Æi, afhverju byrjar maður alltaf að horfa á þessa blessuðu þætti, maður gjörsamlega festist alltaf gjörsamlega fyrir framann þetta, 5 þættir í dag úr seríu 2 og ekki fleiri komnir út í augnablikinu og maður bara vill sjá meira, sjónvarpsþættir eru algjörlega verkfæri djöfulsins, reyndar eitt af þeim betri, skaðar engann að horfa of mikið á sjónvarp er það nokkuð :)

En plan helgarinnar, eða já helgarinnar, til og með morgundagsins var að taka það gífurlega rólega og held að ég hafi bara staðið mig eins og hetja í því nema að ég þarf algjörlega að læra að sofa almennilega út, minn venjulegi sovmorgon (vantar alveg íslenskt orð fyrir þetta) er bara að sofa í 8klst eins og venjulega og liggja svo í 1-2xtra klukkutíma og reyna að sofna aftur!

Þetta vídjó með Ný dönsk bjargar samt hvaða slæma degi sem er, svona fyrir utann að lagið er gott er vídjóið bara ..... já ég veit ekki hvað !



1 Athugasemdir
Oct 30, 2007, 18:38
Svefn er ofmetinn. Þó mig langi alltaf að sofa lengur en ég má á virkum dögum þá leyfi ég mér sjaldnast að sofa lengur en 5-6 tíma um helgar. Mér finnst það hrein misnotkun á frídegi að sofa lengur en til hádegis. Þó það sé bögg að vakna við pípið í símanum klukkan 11 eftir öldrykkju og dans þá er það svo þess virði þegar maður hefur sest niður með kaffibollann. Fegurð heimsins kemur þá bersýnilega í ljós.
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Oct 29, 2007

Klukkan
23:16

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 1

local