iEM 2013 í Gautaborginni

Svíjar og Gautaborg sóttu um ekkert alls fyrir löngu um að fá að halda Evrópukeppni Evrópumeistaramótið innanhús í Gautaborg 2011 og voru aðalkeppninautar þeirra um þetta mót, Frakkar og Parísarbúar.
Í morgun varð það svo ljóst á fundi hjá EAA að mótið 2011 verði haldið í París eftir miklar pælingar þar sem báðar borgirnar litu mjög vel út fyrir mótið, en þar sem þeim leist víst svo vel á Gautaborgina góðu að þá var einnig ákveðið á sama fundi að Evrópumeistaramótið Innanhús 2013 verði haldið þar.

Þannig að þetta þýðir að það verður byggð ný innanhúsbraut í Scandinavium sem er hérna rétt hjá Ullevi. Bara að vona að það verði byggt meira og betrumbætt þannig að maður njóti kanski góða af þessu öllu við æfingarnar hérna.

Má ég nú sjá, 2013 er eftir 6 ár, þá verð ég rétt rúmlega tvítugur + einhver rétt rúmur áratugur, já er ekki bara málið að vera með þá :)



Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Oct 15, 2007

Klukkan
13:58

Flokkur
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 0

local