fyrsta vikan

Ekki frá því að maður hafi bara sloppið alveg sæmilega í gegnum fyrstu æfingavikuna þetta tímabilið, fékk bara aldrei neina hörmulega strengi eins og fyrstu viku síðustu ára þannig að maður var alveg hæfur til setu alla vikuna, sem er náttúrlega alveg gífurlega magnað. Er alveg dágóður slatti av hlaupum á prógramminu, meira að segja fínn hraði í Aeroba sprettunum sem ég á að taka eftir lyftingarnar á þriðjudögum (600-400-200-400-600, 3mín hvíld) sem og á rólega miðvikudeginum mínum (10x200m, 1mín hvíld), svo oná þetta bætast svo við aðal hlaupadagarnir, mánudagar (2x4x100m og 2x350m) og fimmtudagar (2x600m (1.37), 3x300m (1mín hvíld, 43-44s) + 3x300m (5mín hvíld, 40-41.5s), allt með 15mín seríuhvíld). En alveg frábært að vera kominn aftur í gang með æfingarnar. Komst svo líka að því í dag að það eru bara 2 vikur í prófvikuna, ERUM VIÐ AÐ TALA UM AÐ ÞESSI ÖNN ER BÚIN AÐ VERA FLJÓT AÐ LÍÐA.. komin smá próf óróleiki í mann, taka á því síðustu 2 vikurnar...


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Oct 08, 2007

Klukkan
10:15

Flokkur
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 0

local