Nóg er af rigningunni og já, hlaupum bara líka

Það hættir amk ekki að rigna hérna í gautaborginni, það er nokkuð víst, búnir að koma þessir þvílíku demburnar hérna á hverjum degi þannig að maður sér varla húsið sem er hérna 30m við hliðina á íbúðinni minni, alveg magnað þetta og að sjálfsögðu þrumur og eldingar fylgt með eins og hverjar aðrar hetjur. Vaknaði við eina svona bununa í nótt þegar ég hélt að rigningin væri að ná að brjóta sér leið í gegnum gluggana á heimilinu, reyndar magnað við það að þegar ég vaknaði að þá mundi ég eftir einhverjum 3 ólíkum draumum sem mig hafði verið að dreyma um nóttina (samt bara búinn þá að vera sofandi í 2 tíma, og svo þegar ég vaknaði aftur um morguninni mndi ég eftir 2 draumum í viðbót, helvíti magnaður árangur það :) En annars bara lítið að gerast svona fyrir utann lærdóm og það að ég ætla að keppa aðeins um helgina, fer til Falköping á morgun til að hlaupa 400m (frekar keppnislaust þar reyndar) og svo 150m og 300m hérna í Lerum rétt fyrir utann borgina, alveg spurning að bæta sig bara í þessu öllu samann þar sem maður er nú að fara að hlaupa þetta :)


1 Athugasemdir
SR
Aug 18, 2007, 13:19
það væri í lagi að við fengjum eitthvað af þessari rigningu. En gangi þér vel að hlaupa í dag.
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Aug 17, 2007

Klukkan
14:28

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 1

local