einum séns færra

Þetta virðist ekki alveg ætla að sleppa, hljóp 100m og 400m á litlu móti í Varberg í dag. Fílingurinn bara góður og byrjaði á 100m hlaupi. Virðist sem ég þurfi aðeins að æfa startblokina betur ef ég ætla niður á einhverja tíma þar, en hljóp amk vel síðustu 50m, vann hlaupið og bætti mig smá þar, 11.26 í +0.2 meðvindi. Hljóp síðann 400m hlaup þar sem við hlupum með P19 strákunum og voru þetta blandaðir riðlar þannig að þetta yrði einhver almennileg keppni, vann einnig 400m hlaupið á skítsæmilegum tíma, 49.68 og var 7/100s á undann öðru sætinu. Vindurinn jókst eitthvað rétt fyrir hlaupið og hljóp alltof varlega á milli 100m-200m í mótvindinum og fékk engann almennielgann hraða í gegnum seinni beygjuna.. Þannig að núna fækkaði sénsunum um einn að komast undir 49s en en, vonum að þetta hafist allt á endanum :)


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Aug 12, 2007

Klukkan
22:11

Flokkur
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 0

local