Bikarinn 2007

Jæja þá er komið að bikarhelginni góðu, og í fyrsta skipti frá því ég byrjaði að æfa frjálsar að þá verður maður ekki á svæðinu, stærsta ástæðan nú sú að við féllum niður í aðra deildina í fyrra og bikarinn í þeirri ágætu deild verður ekki fyrr en 15.september... sem er alveg gífurlega seint, en aldrei að vita nema maður láti nú sjá sig og hjálpi til við að koma liðinu upp um deild aftur :) En um helgina er einnig Sænska meistaramótið sem er alveg gífurlega slæmt fyrir mig, þar sem ég má ekki taka þátt í því (útlendingur) og þar af leiðandi er lítið um önnur mót þessa helgina og á því móti sem ég ætla að hlaupa á verða engir sem geta neitt (ljótt að segja en satt) þar sem þeir sem geta eitthvað verða á meistaramótinu. En plan helgarinnar er að hlaupa fyrsta 100m hlaup ársins og svo 400m eftir það.


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Aug 10, 2007

Klukkan
06:49

Flokkur
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 0

local