Stutt gamann...

Ekki var/er þetta langt stopp á landinu hjá manni að þessu sinni, kominn suður aftur og fer út í fyrramálið. En stutt yfirlit frá Meistaramótinu núna um helgina: Ég hljóp 400m á laugardeginum, því miður, vegna veðurs voru tímarnir ekki uppá marga fiska, hljóp á 50.20 og kom þar í öðru sæti, einungis 1/100s á undan Einari Daða, svosem sæti sem maður var búinn að búast við þrátt fyrir að maður hefði að sjálfsögðu viljað gera betur þar. Á laugardeginum var algjör skítakuldi, 11°C og köld norðanátt þannig að þegar maður kom útúr beygjunni eftir 100m var það eins og að hlaupa inn í vegg, en ákvað samt að reyna að keyra vel á fyrstu 200m sem kostuðu mig bara því miður of mikið í lokinn, fékk hið mjög svo hæga 24.1 splitt á fyrstu 200m og hljóp gjörsamlega inn í vegginn eftir cirka 370m þar sem ég tapaði öllum hraða og missti næstum Einar fram úr mér, en annað sætið tryggt. Á sunnudeginum var svo 200m á dagskrá. Markmiðið þar var að koma sér á pall, þar sem enginn (fyrir utann Svenna) höfðu verið að hlaupa 200m neitt sérstaklega spes í ár... en þar var breyting á í dag... Rúllaði þægilega í gegnum 200m undanúrslitin og kom fyrstur þar á 22.73s og komst þar af leiðandi í úrslitahlaupið. Fannst ég í rauninni hlaupa það bara mjög vel, eða já... það sem ég man af því, var það einbeittur að reyna að ná Bjarna á fyrstu brautinni (var á fjórðu) að ég man ekki alveg hvernig ég hljóp þetta, en kom í því gífurlega svekkjandi fjórða sæti, einungis 4/100s á eftir bronssætinu á stórbætingu, 22.24 í +1.6 meðvindi, frekar mjög svo mikið svekkjandi að missa af verðlaunarsætinu þar, en sáttur samt með bætinguna. Flug út í fyrramálið og svo að hlaupa sem héri í 800m á miðvikudaginn... verður spennandi það :) En sumsé stutt stopp að þessu sinni, og mjög líklega ekki meira á Íslandi fyrr en um jólin, sem er pínu púkó alveg, mun sakna ykkar allra mikið... knús úr Svíþjóðinni


3 Athugasemdir
Sunna
Jul 30, 2007, 16:04
Hvað bíður þín eiginlega í Sverige, akkuru ertu að flýta þér svon út ? Var búin að reikna með þér á æfingu hjá mér í dag. En til hamingju með bætinguna í 200m
Jul 31, 2007, 06:47
Já takk fyrir það, hefði nú verið gamann að mæta þarna á mánudagsæfinguna en því miður þarf ég að mæta út hérna aftur í vinnu, sem og á mót hérna í bænum á morgun (miðvikudag) þar sem ég er búinn að lofa mér að vera héri í 1stk 800m hlaupi.

En næsta stopp verður nú eitthvað lengra hjá mér og lofa nú að mæta á æfingu þá ;)
palmas
Aug 04, 2007, 21:59
grymt med pers igen.. gör det rätt nästa gång så blir det sub 49...
coach P
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jul 30, 2007

Klukkan
01:02

Flokkur
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 3

local