Evrópubikarinn - samantekt

Ekki varð mikið úr þessari fyrri færslunni minni þar sem ég var alveg ómögulega að nenna að blogga um helgina. En hljóp sumsé 400m aukahlaup á laugardeginum, áttum að vera fjórir strákar í þessu hlaupi en þegar í Call roomið var komið kom bara í ljós að við vorum bara 2 sem ætluðum að hlaupa, ég og einn Andorra strákur sem hafði hlaupið á 52.5 sem best þannig að ég verð nú að viðurkenna að ég hef sjaldann átt jafn erfitt með að peppa mig upp fyrir eitthvað hlaup eins og þetta hlaup þar sem ég var á brautinni utaná honum og vissi að þetta yrði bara algjört sóló hlaup. Þannig að þá var bara að nýta þetta hlaup til að prufa sig aðeins áfram í þessari blessuðu grein og taka rólega fyrstu 200m, en hef alltaf átt í hálfgerðu basli með að hlaupa þá nógu hægt til að lifa af síðustu 200m. Þetta tókst nú bara alveg ágætlega, heyrði einhver splitt uppá 23.7 á 200m og 36.1 á 300m, en hefði alveg þegið einhvern þarna við hliðina á mér síðustu 100m, en rúllaði þetta hlaup frekar létt og þægilega og niðurstaðan P.B. 49.45s og veit alveg að ég á nóg inni þannig að meiri bætinar eru að vænta í sumar, ætti að fá góða keppni á heimsleikunum sem eru hérna næstu helgi! Hljóp svo líka í 4x400m boðhlaupinu í gær og fékk annann sprettinn, enduðum í 7sæti í því og áttum ekki séns að vera neitt þar ofar, langt í næstu lið en fannst ég hlaupa þetta bara alveg ágætlega og svipaður fílingur og í 400m hlaupinu daginn áður, þeas, sæmilega þægilegt rúll bara, heyrði einhver 2 splitt á mér, 48.9 og 49.0 þannig að bara sæmilega sáttur með það. Dönsku starfsmennirnir voru ekki alveg að gera sig í þessum 4x400m boðhlaupum, eitt kvikindi labbaði fyrir Stefaníu í kvennaboðhlaupinu og er þessi hérna maður auglýstur af mér fyrir að hafa labbað fyrir mig þannig að ég hljóp á öxlina á honum eftir einhverja 20m!
En við karlarnir enduðum í 7sæti samanlagt sem er nú bara ekkert til að hrópa neitt húrra fyrir en getum vonandi gert betur að ári


7 Athugasemdir
Arndis Maria
Jun 25, 2007, 22:47
heyyy

til hammo med P.B : )

kv. Arndis Maria
Jun 26, 2007, 14:26
Já gott hlaup!
Arndís María
Jun 27, 2007, 04:53
ég er að kommenta í nýju macbook tölvunni minni - JEYYYYY - nú erum við eins :-)
Jun 27, 2007, 10:57
Naaauuuts, til hamingju með það, núna get ég í fyrsta skiptið sagt við þig \"Arndís María... Þú ert kúl\" :)
Jun 27, 2007, 14:21
Það er samt eiginlega bara tölvan hennar sem er kúl.... ;)
Jun 27, 2007, 15:36
Mikið rétt, en kúlstatusinn hennar hækkar nottla líka við að fá sér Mac... en samt nottla kanski vitleysa að setja Díslu strax í kúl flokkin...

Arndís, þú ert alveg ágætis grey :)
Arnar Már
Jun 27, 2007, 18:10
Glæsilegt, til hamingju með bætinguna! Þú hefur svo væntanlega bent þjálfurum og öðrum fylgifiskum góðfúslega á að þú hljópst hraðar en íslenski keppandinn gerði í aðalhlaupinu (miklu hraðar reyndar).
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jun 25, 2007

Klukkan
22:27

Flokkur
Frjálsar

Fjöldi athugasemda: 7

local