Góður nætursvefn

Ef maður ætlar að sofa yfir sig er alveg eins gott að gera það með stæl! Naði sumsé þessum ljómandi fína næstum 11klst svefni í nótt, sofnaði eitthvað rétt fyrir miðnæti og vaknaði ekki fyrr en Tomas, sá sem ég geri lokaverkefnið mitt með, hringdi í mig kl. 10:30 í morgun og spurði hvar í andskotanum ég væri :) Ef það gengur jafn vel að vakna á laugardaginn að þá verður það eitthvað skrautlegt, en fer þá til SKRUV.... já nákvæmlega... WTF!!, en það er einhver lítill bær rétt hjá Växjö, sem segir ykkur ábyggilega ekki neitt, á eitthvað með krökkunum sem ég er að þjálfa, verður farið KLUKKAN 07:00 um morguninn og komið aftur heim um kvöldið, shiiiiittt hvað ég á eftir að sofa yfir mig! Verð bara meira og meira pirraður á þessum blessaða hamstring á mér, en hljóp í dag 400m - 10mín hvíld - 3x300m með 3mín hvíld - 7mín hvíld - 3x100m. Átti bara að taka þetta nokkuð rólega il að sjá hvað hamurinn þoldi og byrjaði fínt, 51.5s á 400m alveg voðalega létt og þægilegt, 24.6-24.8-25.1 á 200m en var þá farinn að finna fyrir hamnum í lokin og svo alveg skíthægir 100m útaf helvítinu. Hljóp reyndar inni í dag þar sem hitinn var bara rétt yfir 10°, rigning og vindur... En nýjasti Heroes var að koma í hús þannig að sjónvarpið kallar :)


1 Athugasemdir
Alla
May 18, 2007, 19:11
haha greyið þú, ég afþakkaði bara pent að fara í þessa ferð til Skruv vegna anna í skólanum og vá hvað ég var fegin þegar ég heyrði að það ætti að fara kl 7 frá Friidrottens Hus
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
May 17, 2007

Klukkan
17:42

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 1

local