Gó express

Miðað við Fréttablaðið í dag að þá ætlar Iceland Express að byrja að fljúga til Gautaborgar í Maí á næsta ári, SEM ER BARA SNILLD. þannig að það spara manni þá einhvern 3000-4000kr og 4klst í lest til kaupmannahafnar + biðar á flugvellinum, þannig að maður ætti bara að geta verið kominn á krókinn frá Gautaborg á cirka.. hmm.. 7 tímum í staðinn fyrir 13-15 :) Þokkalega sáttur ef þetta er rétt og gengur eftir, bls 2 í fréttablaðinu í dag. En náði loxins áðann að ganga frá umsókninni minni um sænskt ökuskýrteini, allt er þegar þrennt er, er þaggi? Fór sumsé í gær og vantaði mig þá bréf til að sýna fram á að ég hefði búið hérna lengur en í 6 mánuði, átti þá bréf frá því í fyrra yfir þegar ég fékk kennitöluna mína og fór með það, þurfti það þá að vera elst 2ja mánaða (takk fyrir að segja mér það núna) og fór því og reddaði því og var þá allt í gúddý, þannig að það ætti vonandi að koma fljótlega til mín. Keypti mér svo líka nýja tösku í skólann en sem er líka það þægileg að geta bara notað hana dagsdaglega (svona hliðartaska) þannig að maður getur þá hent símnum, veskinu og öllu smádraslinu í hana í staðinn fyrir að vera með úttroðna vasa á röltinu út um allt og finna ekkert þar, skil stelpurnar núna vel afhverju þær eru alltaf með töskur með sér...


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Sep 01, 2005

Klukkan
12:53

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local