Að skána

Úff hvað þetta eru búnir að vera leiðinlegir síðustu 2 dagar, maður er búinn að geta lært svona 40% af því sem maður vildi vera búinn með en þessi djöfulsns veikindi eru bara búin að hægja þetta svo helvíti mikið... En amk hressari í dag, hóstasaftið, nefspreyið, engiferrótin, te-ið og hunangið greinilega að gera sitt þannig að maður ætti að geta keyrt aðeins á þetta í dag og flengt þetta blessaða próf á morgun. Afrekaði á mánudagskvöldið að bara geta ómögulega sofnað, hóstaði svo mikið, gat ekki andað með nefinu og alltaf svo heitt og kalt til skiptis að það tók cirka 5 tíma að sofna og sofnaði ég þar af leiðandi einhverntímann í kringum 04:30-05:00, gífurleg stemning í því. Er alveg að verða brjálaður af þessu innistandi og hreyfingarleysi, taka smá göngutúr á eftir í góða veðrinu en það á svo bara að fara uppí 20°C hérna um helgina þannig að alveg spurning að nýta það aðeins og fá smá lit á hvítu húðina fyrir spánarferðina! Veit ekki alveg hvað ég horfði á í gær, en amk endaði sá leikur 7-1, hélt ég væri að horfa á fótboltaleik en hann endaði bara með þessum mögnuðu íshokkítölum, já Man Utd fær nú smá credit fyrir þennann leik, voru jafn góðir og vörnin hjá Róma var léleg, en mörg flott mörk samt, verða samt slegnir út af AC Milan sem vinnur Bayern í kvöld og svo verður Milan slegið út aftur af Liverpool sem rúllar yfir PSV í kvöld og svo Chealsea í semi og tökum við aftur Championship League dolluna með álíka miklum dramaleik og síðasta á móti Milan


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Apr 11, 2007

Klukkan
13:07

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 0

local