Að læra veikur, pfiff...

Það er basicly ekkert skemmtilegast í heimi að sitja heima í próflærdómi, og þá alveg langt frá því skemmtilegra að gera það veikur, en ákvað að testa það svona í dag þar sem ég hef aldrei verið áður veikur svona yfir prófin áður svo ég muni, meira bara verið í letinni í staðinn. Hafði verið eitthvað hálf slappur á laugardaginn, í tipp topp í gær og vaknaði svo bara eins og aumingi í morgun, hósti, vel stíflað nef, höfuðverkur og bara þessi almenna vanlíðan en ákvað samt að prufa að fara á æfingu, enda oft sem maður batnar bara þegar líða fer á daginn. En því miður var það ekki alveg svo gott í dag og eftir 3 upphitunarhringi í höllinni ákvað ég bara að drulla mér heim þar sem mig var bara farið að svima aðeins og hættur að geta elt þessar hvítu línur á rauða tartaninu. Þannig að heima með massa af blöðum fyrir framann sig, kaffi í hægri og Te með hunangi í vinstri. Fór því að pæla eins og alltaf áður afhverju maður byrjaði nú ekki að læra fyrir þessi blessuðu próf fyrr svo maður ætti nú ekki svona mikið eftir síðustu dagana. En maður getur sumsé lært fyrir próf á tvo ólíka vegu: Rétta leiðin Setjast niður tímanlega og lesa í rólegheitunum yfir allt efnið, skemmir alls ekki fyrir að hafa verið samviskusamur líka yfir alla önnina Mín leið - Af einhverri frábærri ástæðu finnur maður sér alltaf eitthvað tímafrekt að gera í vikunni fyrir prófin, núna var það að byrja að hanna nýja heimasíðu frá grunni sem verður nokkurra vikna verk - Nottla algjör óþarfi að byrja of snemma að læra fyrir prófin og einhverstaðar í undirmeðvitundinni reiknar maður út hvað mörg próf maður fer í og hve marga daga MAX maður þarf að læra fyrir hvert próf, allir dagar fyrir utann þennann MAX hring eru að sjálfsögðu heilagir frídagar til að slappa af og gera örugglega ekki neitt gáfulegt. - Þegar maður ákveður svo að byrja að læra, sem er yfirleitt á síðasta mögulega deginum til að geta byrjað að læra fyrir prófið til að ná því örugglega, að þá virðist alltaf vera algjört mösst að taka íbúðina alveg í gegn, þrífa hana á þeim stöðum sem hafa aldrei verið þrifið á áður og láta hana glansa sem aldrei fyrr, sem er sennilega það mest óþarfa í öllum heiminum þar sem það er algild regla að maður gengur um íbúðin eins og versta svín yfir prófin og þarf hvort eð er að laga aftur til strax eftir þau! - Allir mögulegir sjónvarpsþættir verða gífurlega áhugaverðir og algjört mösst að sjá, sama hve leiðinlegir þeir hafa verið áður... - Maður finnur alltaf fyrir gífurlegri þörf til að sjá einhverjar bíómyndir sem maður hefur aldrei haft tíma til að sjá áður og tatamm, þær finnast alltaf á góðum stöðum á netinu. - Algjört mösst að ná sér í góða próflærdómstónlist og alltaf tekur jafn langann tíma að finna hana, sortera hana og setja á réttann stað í tölvunni og þar sem maður er nú að því að afhverju þá ekki líka bara að fara í gegnum restina af lögunum í tölvunni og láta þau örugglega heita réttum nöfnum og vera rétt skipurlögð. - Alveg ótrúleg þörf til að skrifa löng blogg... En jæja, komið nóg af rugli í bili, hálf hættur að sjá á skjáinn hérna og málið að ná sér í bíómynd kvöldsins :)


2 Athugasemdir
sr
Apr 10, 2007, 01:08
Ég hefði ekki trúað því hvað þú getur lýst þér rétt, eða var einhver að hjálpa þér..
Apr 11, 2007, 11:41
Eftir of mörg ár í skólanum fer maður að þekkja sjálfann sig aðeins of vel ;)
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Apr 09, 2007

Klukkan
19:23

Flokkur
Almennt

Fjöldi athugasemda: 2

local