ooohhh crap

Óþolandi þegar maður er algjörlega búinn að ákveða að fá sér eitthvað að borða og svo klikkar það, reyndar gerist það alveg helvíti oft þar sem ég gleymi að taka það úr frystinum, eða meira svona gerðist, á nottla núna örbylgjuofn sem er algjör lifesafer þegar maður gleymir því. En í kvöld var planið að fá sér heilann kjúlla, sá í blaði í dag að það væru seldir heilir tilbúnir heitir kjúllar í Hemköp núna í vikunni og var algjörlega planið að fá sér svoleiðis eftir æfinguna, mundi einmitt eftir einni búð hérna fyrir ofann mig og var alveg viss um að það væri Hemköp, kem svo heim, rölti uppí búð og mér til algjörar skelfingar að þá mundi ég svona helvíti vitlaust því helvítis búðin hét víst Tempo en ekki Hemköp, þannig að enginn kjúklingur í kvöld og bara brauð í samlokugrilli þar sem ég var bara alveg búinn að ákveða að elda ekki í kvöld :( En úr slæmu fréttunum í þær góðu, ég fór nebbla að versla í dag, og ekki bara í matinn heldur breytti algjörlega af vananum og keypti mér 2stk buxur og að ég held alveg örugglega mínar fyrstu Levi's gallabuxur + einar í viðbót, en þurfti þá að hætta að máta, drífa mig í að borga og skrattast á æfingu, þannig að þar sem ég ætla að skoða mikið mun meira að þá verður framhald á þessu rugli á mér á morgun, nebbla að spá í að kaupa mér eina skyrtu í viðbót, eina peysu, skólatösku og eitthvað meira... og éta bara hafragraut í mánuð í staðinn, topp plan ha :) En annars var þetta ekki það eina sem ég gerði í dag heldur sótti ég líka um sænskt ökuskýrteini (vantaði nebbla sænskt ID, Legitimation.... íslenska orðið er.... *2mín síðar* persónuskilríki, get aldrei munað þetta helvítis orð) og slæ því tvær flugur í einu höggi með þessu, vona að fá þetta bara sem fyrst auk þess sem ég skokkaði aftur í hakkarabúðina fyrir Ara og fixaði símann hans, dugnaður í kallinum eða hvað, já og svo enginn skóli á morgun..... jííííhaaaaa


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Aug 31, 2005

Klukkan
18:59

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local