Merkilegt alveg

Vá hvað ég hata þegar þetta gerist, maður gerir einhvern góðann kvöldmat og passar sig á því að gera örugglega nógu mikið þannig að maður geti tekið eitthvað með sér í skólann/vinnuna til að jappla á almennilegum mat í hádeginu daginn eftir... það gerði ég sumsé í gær. Sauð mér svo smá pasta í morgun til að hafa með matnum og skelli því oní boxið. BUT, svona þegar það kemur loxins að hádegismatnum og maður seylist glorsoltinn ofaní íþróttatöskuna að þá er ekkert helvítis nestisbox þar!! þannig að basicly hef ég sett það aftur í ísskápinn, í vaskinn eða þá að það liggur einhverstaðar á góðum stað á borði inni hjá mér að sleikja sólina og verða örugglega nógu ónýtt þegar ég kem heim í kvöld! Bjézkotinn


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Apr 05, 2007

Klukkan
11:50

Flokkur
Ljóskan ég

Fjöldi athugasemda: 0

local