Loftnet

Jæja, reyna að vera sérstaklega virkur með þennann flokk og bara skella öllu þessu ljóskulega sem ég geri hérna út, já eða bara svona dagsdaglega. En amk, var ég að flytja inn í nýju íbúðina mína fyrir rúmum einum og hálfum mánuði síðann vorum bara tveir eftir, ég og Jonas skólafélagi minn og planið að henda upp humangus sjónvarpsskjápnum mínum, fá sjónvarpið í hilluna og sitja svo uppí sófa með kaffi með tærnar uppá borði og slappa af eftir flutninginn. Allt gekk eins og í sögu, eða svona jújú, hefði alveg mátt ganga betur að koma skápnum samann, but what so ever, þannig að ég skuttlaði mér uppí sófa, kveikti á sjónvarpinu og sá mér til mikillar furðu að engin stöð virkaði í sjónvarpinu Ég: "Nei hvur djöf, þarf ég að stilla inn allar stöðvarnar aftur" og fór að fikta í fjarstýringunni að undirbúa að fara að leita að öllum stöðvunum Jonas stóð þarna við hliðiná mér, horfði á mig eins og ég væri fífl og sagði "Ragnar....!! þú þarft líka að setja loftnetið í samband!!" Ég nottla alveg dauðskammaðist mín þar sem ég var nú með snúruna í hinni hendinni og bara "jájá, veit það alveg". Tróð mér bakvið sjónvarpið og setti loftnetið í samband við sjónvarpið og settist svo í sófann aftur. "Nei hvur djöf... þetta virkar ekki ennþá!!!" * ath, þegar hér var komið við sögu var maður vel þreyttur eftir flutninginn og allt vjézenið um morguninn * Jonas stóð þá við hliðina á mér og horfði á mig eins og ég væri algjört fífl, beið í smástund og sagði svo "RAGNAR, ERTU VIRKILEGA EKKI AÐ GRÍNAST?????" Ég : "Nei þetta er bara ekki að virka" Jonas: "Ragnar, þú þarft líka að setja hinn endann í vegginn!!!!" Tók þá eftir mér til mikillar skelfingar að ég hélt ennþá á hinum endanum af loftnetsnúrunni í annarri hendinni, lá svo mikið á að kveikja á sjónvarpinu að ég hafði hreinlega steingleymt að setja hann í vegginn... Já.. þurfti sumsé að þola ekkert fá skot næstu vikurnar eftir þetta, en svona vitlaus getur maður nú verið þegar maður er þreyttur!!


1 Athugasemdir
sr
Mar 24, 2007, 02:46
Þessi pistill lenti örugglega í réttum flokki hjá þér
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Mar 22, 2007

Klukkan
14:34

Flokkur
Ljóskan ég

Fjöldi athugasemda: 1

local