Krakkar mínir komiðið sæl

Ég er nú samt ekki jólasveinninn... var beðinn um að skella mynd af mér, stuttklipptum, á síðuna mína og ákvað ég bara að gera það núna, svona þar sem það er loksins til mynd, að leyta að hakkarabúð, en stal henni að sjálfsögðu frá Ara í leyfisleysi og vona ég að hann fyrirgefi mér það :) Setti svo áðann inn Smiley dótið í commentkerfið en ekki í fréttakerfið eins og meirihluti fólks vildi, og ég í rauninni líka en varð bara að fá að vita hvort fólk vildi nú, alltaf að reyna að gera öllum til geðs! Og svo byrjaði skólinn í dag, gríðarlega sáttur með stundartöfluna, til hádegis á mánudögum, frá 10:30-15:00, miðvikudögum reyndar frá 8:30-17:00 en þá á fríi á fimmtudögum, eða þá að vera bæði á mið- og fimmtudögum frá 8:30 - 12:00 og svo á föstudögum frá 8:30 - 12:15, ekki slæmur skítur það, já og áfangarnir, "Realtidssystem" og "Transformer och Linjara system" sem er í rauninni svona rafmagnsdæmi en vona innilega að það verði mest bara stærðfræðiútreikningar eins og það leit út fyrir í dag og maður þurfti ekki að skilja nógu mikið í Viðnámi og því dóti, eeekkkiii alveg mín deild. Og svo ákvað ég í dag að núna í vikunni myndi ég kaupa mér 2stk buxur ASAP þar sem ég er gjörsamlega að verða buxnalaus og er ekkert að grínast með það þar sem að buxurnar mínar eru flestar að verða það götóttar að þær hverfa eftir nokkrar vikur, ekki nógu gott það fyrir svona töffara eins og mig!!!


6 Athugasemdir
Bergur
Aug 30, 2005, 00:07
[:D] [:)] [;)] [:(] [:Þ] [8D] [:s] [:|] [:?]

Vííííí!
Aug 30, 2005, 06:31
hmmm... algjörlega spurning að taka þetta út aftur svo að litlu 70kg tvítugu strákarnir fái ekki meiri útrás [;)]
Burkni
Aug 30, 2005, 12:25
Já, mjög fallegur, eða eitthvað. [:s]
Er annars HTML enablað í kommentakerfinu?
Fanney
Aug 30, 2005, 20:17
Eins og ég hef alltaf sagt þá ertu langsætastur stuttklippur [:)] Ótrúlega sætur!!!!
Aug 31, 2005, 05:36
Burkni: nei engin html leyfð í commentunum, en ef fólk vill get ég svo sem leyft Bold, Italic, URL og eitthvað svoleiðis stöff, en amk núna virkar ekkert svoleiðis.

Fanney: LANGSÆTASTUR [;)]
Ari
Aug 31, 2005, 09:48
[:(]
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Aug 29, 2005

Klukkan
20:38

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 6

local