Eurovision

Jæja jæja, þá er loxins búið að velja lagið sem Svíjarnir senda í Eurovision í ár og basicly já, ekki alveg eftir sænsku formúlunni, en sigurvegarinn í ár var sumsé The Ark með lagið "The Worrying Kind" þannig að ekki alveg þessi týpíska Abba balaða sem fer héðann í ár.
En þetta dæmi er samt ekkert smá stórt hérna, kallast melodifestivalen og varla verið neitt annað í sjónvarpinu eða í blöðunum síðustu vikurnar nema umfjallarnir, spár og spögguleranir um þetta allt samann. Síðan eru að sjálfsögðu undankeppnir, fjögur stykki minnir mig að það hafi verið með 8-9 keppendum hver þar sem þau 2 efstu í símakostningunum fara áfram í úrslitin og einhver 2 í viðbót fara í "andra chansen" og svo er einn þáttur í viðbót með öllum lögunum í andra chansen og fara þá 2 lög þaðann áfram í úrslitin og svo eru að sjálfsögðu úrslitin sjálf. Meira ruglið, sá ekki úrslitin í gær þar sem ég var svona frekar upptekinn af því að læra til miðnætis og hafði ekki heyrt lagið með The Ark áður en með hjálp af DC og youtube var því reddað á no-time, amk, hérna er sumsé lagi sem svíjarnir senda í ár, tekið af youtube og er þetta held ég í undanúrslitunum, ekki frá úrslitinum í gær.


2 Athugasemdir
Mar 11, 2007, 21:45
Flaaaaaiming gay línudans swing að hætti Svíja. Hmmmm....
Ari
Mar 12, 2007, 12:27
Æi ... myndavélin er á svo mikilli ferð að ég er hálf sjóveikur. Þetta er svo mikið ógeð, þessi Júróvísjón klisja, að það er ekkert eðlilegt. Lagið sjálft er fínt. Þetta þetta show er eitthvað svo glatað ... hvað er orðið ... of-mikið-að-reyna-að-vera-fabjúlus. Ha? Eða er ég hnetur?!?
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Mar 11, 2007

Klukkan
09:58

Flokkur
Svíþjóð

Fjöldi athugasemda: 2

local