Merkilegt alveg

Er búinn að vera alveg ótrúlega þreyttur og í gær alveg hálfónýtur af þreytu, en ákvað að harka það af mér, spila póker hérna heima með nokkrum félögum mínum og svo bara sofa út í morgun, langt síðann maður hefur getað gert það og þarf ekki að gera neitt í dag nema vera þjálfari á móti hérna í dag fyrir krakkana mína milli 12-16. En eins og það hefur verið erfitt að rífa sig á fætur í skólann alla vikuna að þá var ég glaðfuckingvaknaður rétt fyrir 08 í morgun!! HVAÐ ER MÁLIÐ MEÐ ÞAÐ ??? Fór út með ruslið áðann og hefur greinilega verið gott djamm hérna niðri í nótt þar sem að stór gluggi í anddyrinu var gjörsamlega í maski... alltaf gott að eiga bara heima á fjórðu hæð.... En talaði einhverntímann um daginn um að það hefðu verið arbetsdagar í skólanum þar sem það koma alveg fullt af fyrirtækjum í skólann, eru með sína bása að kynna fyrirtækið sitt og reyna að fá til sín fólk í vinnu. Var eitt franskt fyrirtæki, staðsett í frönsku riverunni í Frakklandi, sem við töluðum við þar, hljómaði alveg ágætlega nema að þeir voru ekki með neina bæklinga um fyrirtækið sem maður gat haft með sér, þannig að gaurinn þar bað okkur bara að fylla nafn, e-mail og smá upplýsingar um okkur á eitthvað umsóknareyðublað sem hann var með þarna og svo myndi hann senda allar upplýsingar á okkur, talaði svo heillengi um hvað þeir myndu borga alla ferðina fyrir okkur þangað út, redda íbúð, frönskunámi og veit ekki hvað og hvað ef við myndum fara þangað og vinna fyrir þá, við bara jájá, sendir okkur bara smá upplýsingar. Síðann nokkrum dögum síðann fengum við allir mail með einhverjum upplýsingum um fyrirtækið og að þeir vildu alveg endilega fá okkur í vinnu hjá þeim, bara senda CV og smá meiri upplýsingar um okkur til þeirra, sem maður gerði nú ekkert þar sem að stefnan er nú mastersnámið í haust. But anyway, svo núna á þriðjudaginn síðasta fékk ég símtal frá frakklandi frá einhverri konu sem er að vinna hjá þessu fyrirtæki, og eins lítið og ég skildi í þessari ensku með þessum frábæra franska hreim að þá vildu þau bara alveg endilega fá mig þangað út til þeirra, væri alveg helvíti gamann ábyggilega að prufa eitthvað svona í 1-2 ár, en núna, nei held ekki, Frakkland reyndar ekki alveg heillað svona mest í heimi, en ætli maður verði ekki bara með alla ólíka möguleika opna að námi loknu :) Þar sem þetta blog er nú orðið svona helvíti langt og ég búinn að vera svona hrikalega latur að blogga undanfarið að þá er bara alveg jafn gott að halda bara aðeins áfram er þaggi :)
Ég er sumsé núna kominn með þetta feita Apple fever, bara gjörsamlega elska þessa blessuðu tölvu mína og allt sem að þessu fyrirtæki kemur í augnablikinu, er líka búinn að vera duglegur undanfarið að kaupa mér alveg hitt og þetta sem mig hefur langað í lengi (jájá, lifi mjög fátæku lífi næstu mánuðin en fuck that, totally worh it) og basicly langað að gera allt þráðlaust hérna heima hjá mér, netið, soundið, prentarann og allt svoleiðis og þar sem maður var nú kominn inn á apple línuna að þá var þessi snilldargræja hérna keypt í gær, Airport Express sem leysti bara öll mín vandamál á sama tíma, Prentarinn tengdur við þetta, iTunes og græjurnar komnar samann og allt þráðlaust of fínt!! I´m living in my own dream right now, og þakka Ara alveg kærlega fyrir að ýta mér síðustu metrana yfir í Apple lífið :) Og ef Webcamið og Photo Booth er ekki nógu góð ástæða fyrir því að kaupa sér Macbook að þá veit ég ekki hvað :


3 Athugasemdir
Fanney
Mar 03, 2007, 11:14
Bara út af myndunum hérna fyrir ofan langar mig í svona tölvu... helvítið að vera nýbúin að fá sér Dell
Alla
Mar 03, 2007, 21:18
heyrðu ég held að vinur minn hafi verið að vinna hjá þessu franska fyrirtæki þar síðasta sumar og fékk einmitt vinnuna í gegnum Charm Dagana. Hann var mjög sáttur með það sem sumarvinnu.
Ari
Mar 05, 2007, 11:38
Hahaha...photobooth verður ALDREI þreytt! Myndin neðst til hægri er snilld! Snilld segi ég!
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Mar 03, 2007

Klukkan
10:39

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 3

local