pínu strengir í þeim óæðri

Alveg ótrúlega pirrandi, maður er búinn að gera risaskammt af góðum kvöldmati sem maður getur svo tekið með sér í skólann næstu daga til að jappla á í hádeginu, svo þegar það er komið að hádegismatnum, maður ótrúlega svangur eftir fyrstu fjóra tímanum í skólanum, opnar töskunna fullur eftirvæntingar að fá almennilegann hádegismat og fatta þá sér til mikils ama að maður gleymdi að taka með sér nestisboxið og það liggur bara heima í góðum fíling í ísskápnum.... gerist bara alltof oft! Reyndar fyndið þegar ég var að gera þennann stóra skammt af mati á mánudaginn, jú maður var nú alveg pínu þreyttur eftir ferðalagið heim og upphaflega ætlaði ég að gera mér Lasagne, skelli 1kg af kjöti á pönnuna, steiki það, skelli tilbúna lasagne mixinu ofaní + smá taco spice mix (já ég veit, tilbúið mix er lame, bara ekki alveg búinn að hitta á réttu uppskriftina sjálfur + já ég er skrýtin að nota taco mix með) skera niður papriku og lauk og skella ofaní gumsið, lét það svo malla í smástund og svo þegar það var tilbúið ætlaði ég að skella þessu í form með pastaplötunum og tók þá eftir að Lasagnemixið var bara ennþá ofaní pakkanum! K omst svo að því að ég hafði víst notað Bolognese mix og tacomix í staðinn... maður á alveg sín móment í eldhúsinu sko. Eyddi annars öllum daginum í dag niðri í skóla þrátt fyrir frí að skoða hin og þessi fyrirtæki en í gær og ídag voru CHARM dagar í skólanum þar sem alveg hundruði fyrirtækja koma uppí skóla að kynna sig, verkefnin þar og reyna að fá fólk að koma að vinna fyrir sig, alveg helvíti gamann að skoða þetta allt, bara of stuttur tími þar sem það er ekki séns að komast í gegnum öll sem maður myndi vilja að tala við + mjög fínt til að finna lokaverkefni fyrir námið sitt þarna, vonandi að það leysist á næstu dögum :)


4 Athugasemdir
Feb 15, 2007, 16:09
Ég dýrka að lesa eldhússögurnar þínar. Það er nefnilega svo fyndið að þú ert alveg mikill matmaður, hefur gaman og gerir mjög oft eitthvað gott að borða, það samt einhvern veginn klikkar einum of oft! :D

Þú ert allavega byrjaður að muna að taka hakkið úr frystinum, svo við horfum á það jákvæða.
Burkni
Feb 15, 2007, 23:29
Mér fannst það afturför þegar Raggi fór að taka hakkið úr frysti [:Þ]
Feb 16, 2007, 00:10
Ætti maður sumsé að fara að setja ALLAR eldhússögurnar hérna svona til að halda þér glöðum ;)

En já, hakkið er allt í framför, mæli með að allir eigi svona undratæki sem örbylgjuofninn er :)
Arndís María
Feb 16, 2007, 15:37
mig langar að heyra fleiri eldhús - klúðurssögur:D
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Feb 14, 2007

Klukkan
23:32

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 4

local