jæja... FLUTTUR!!!

Jæja, þar kom að því að gamla góða íbúðin mín á Eklandagatan 29b var kvödd með tárum eftir alveg gífurlega mikið streð og svita við að þrífa og pakka og ekki frá því að móðir mín hefði verið stolt hefði hún séð íbúðina eftir þessi átök mín og náði að skila henni alveg tandurhreinni eftir allmargra klukkutíma þrif, og fyrir þá sem eru jafn vitlausir og ég að halda að pakka og þrífa taki bara 2tíma.... ÞAÐ GERIR ÞAÐ EKKI!! amk margfalda þennann tíma með svona cirka 15 og þá fær maður aðeins nákvæmari tíma... En flutningurinn gekk annars bara fínt, fékk smá hjálp frá Krissu á miðvikudagskvöldið til að klára að ganga aðeins frá íbúðinni og svo frá Dennis æfingarfélaga mínum, Jonas bekkjarfélaga og Bjössa Margeirs við að flytja stöffiðí nýju höllina þar sem maður situr núna eins og kóngur í ríki sínu. En það er bara eitt.. þegar maður er búinn að vinna eins og sjúklingur við að pakka og þrífa... er svo kominn með allt stöffið á nýja staðinn, að þá liggur náttúrlega ekkert á að pakka upp og raða öllu dótinu, gef mér svona 2 mánuði til að koma þessu á hreint, en að sjálfsögðu allt aðaldótið komið á sinn stað, sjónvarpið, gærjurnar, tölvan og kaffikannan :) Hefði reyndar aðeins átt að spá betur í því þegar ég vaknaði alltof seint í morgun og þurfti að rífa uppúr helminginn af kössunum til að finna einhver föt til að fara í og allt æfingardótið til að geta tekið smá æfingu í dag, en eftir góðann sprett út að þá náði maður strætónum alveg "örugglega" :) En já, átti að hlaupa í gær 1x150m og 1x450m, fara 400m á 50.0s og svo bara lifa síðustu 50m en útaf öllu flutningardótinu voru lappirnar ekki alveg í lagi þannig að við frestuðum því til dagsins í dag. Og já það gekk bara alveg ágætlega, reyndar alveg hrikalega þreyttur allann daginn en batnaði nú aðeins eftir upphitunina og 150m (hraða-/tíðni breytingar á 50m kafla) fór á 16.4 og svo 18mín síðar hljóp ég 450m. Fannst reyndar lappirnar eitthvað pínu þungar (ekki jafn slæmt samt eins og um síðustu helgi) og fannst ég líka vera að hlaupa eitthvað hægt þannig að ég reyndi að auka eitthvað eftir 150m, engin næmni fyrir tímunum í hlaupinu og bjóst alveg eins við 52s í gegnum 400m og svo hreyfðist maður nú kanski ekkert það mest í heimi síðustu 50m. En, timarnir komu nú reyndar pínu á óvart, var of HRAÐUR fyrstu 200m: 22.9, 35.7 á 300m, 50.01 (hefði verið skemmtilegra að fá 49.99) á 400m og svo 57.7 á 450m, þannig að lítið í rauninni hægt að kvarta yfir þessu. Hvíld yfir helgina, fara hvetja restina af æfingahópnum á morgun í 60m og svo bara Meistaramótið um næstu helgi :) Og til að svara spurningunni hennar Arndísar með myndirnar af höllinni að þá koma þær EKKI fyrr en ég verð búinn að fjarlægja alla kassana af gólfinu ;) En já.... ætla að reyna að koma mér í að setja RSS dót á síðuna mína um helgina fyrir þá sem hafa verið að kvarta, gengur nottla ekkert að hafa síðuna svona old style!!!


1 Athugasemdir
SR
Feb 03, 2007, 20:24
Æ hvað það er notalegt að þú skulir hugsa til mín þegar allt var orðið hreint,Ég er stolt af þér [:D] [:D] Sendu okkur póst með nýja heimilisfanginu....
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Feb 02, 2007

Klukkan
19:59

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 1

local