atsjú

Djöfulli sem ég hef náð mér í stórskemmtilegt kvef síðustu daga og einhvern smá vott af hálsbólgu, já svona fara þessar 10° og rigning með mann..! Fer í próf á þriðjudaginn þannig að í rauninni er alveg gífurlega lítið að frétta af mér og lítið frá að segja þar sem maður situr basicly meirihlutann af deginum inni og lærir... já eða reynir að koma sér af stað að læra, en alveg merkilegur andskoti hvað það er alveg ótrúlega erfitt og svona sérstaklega eftir jólin og náttúrlega handónýtt að vera með allt þetta skemmtilega fólk á msn-inu, allar áhugaverðar vefsíður á netinu og bara hvaða sjónvarpsdagsrká sem er..! En já, hleyp sumsé 200m og 400m núna á laugardaginn, fæ einhvern klukkutíma á milli þeirra sem verður alveg glimmrandi, fín keppni í 200m en eitthvað minna um það í 400m hlaupinu og fyrir utann einn 38 ára gamlann kall að þá er ég ELSTI KEPPANDINN í báðum þessum greinum....djöfull er ég að verða gamall!!


1 Athugasemdir
Arndís María
Jan 12, 2007, 15:01
ja þú ert asskoti gamall....ég er nottlega að verða TUTTUGU OG....það er hræðilegt...! en lítum á björtuhliðarnar, við þekkju 2 menn (hóst - heita sama nafni -hóst) og þeir eru að verða 27 og 29....ÞAÐ ER GAMALT...nei djók
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jan 11, 2007

Klukkan
11:02

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 1

local