freesshh

ú babe hvað ég er að fíla að sofa út á morgnanna en ef náð því núna 3 daga í röð og greinilega verið eitthvað sem ég þurfti, þá sérstaklega í gær þegar ég svaf einhverja 11klst, vaknaði svo við mýgandi rigningu og rok sem voru í hörku slag á glugganum hjá mér þannig að eina sem kom upp í hausinn á manni var "ooohhh hvað ég nenni ekkert út í dag", 5mín síðar hringdi félagi minn til mín og tilkynnti mér þau gleðitíðindi að kennarinn væri veikur en endaði nú samt uppí skóla sökum gríðarlegs dugnaðar þar sem við verðum að vera tilbúnir með 3d spilið okkar á föstudaginn til að redovisa því (vantar íslenska orðið takk...) enda erfitt að standast það að sitja og forrita fyrsta persónu 3D spil þar sem kú labbar um og skítur niður skriðdreka og reynir að finna íslenska fánann ;) Svo nottla ekkert skemmtilegra heldur en að vera cirka klukkutíma á æfingu frá skólanum með strætónum sem tekur vanalega 33mín, virðist bara að rok og rigning fái fólk gjörsamlga til að missa alla hæfileika til þess að keyra... Alveg sæmileg æfing svosem í gær, 2x30,2x40,2x60,2x80,2x100,2x120,2x150m með 5mín hvíld á milli og (3-15mín seríuhvíld) og fór basicly bakið á mér í rúst eftir fyrstu 7 sprettina, versnaði bara og versnaði og eftir seinni 80m sprettinn komst ég bara að því að það gæti hreinlega ekki orðið verra og hljóp því að sjálfsögðu restina, handótnýtur á milli spretta, erfitt fyrstu 4 skrefin en svo fann maður ekkert fyrir þessu þegar maður var kominn af stað, helvíti magnað það stöff, 13:i og 14:i sprettirnir á léttum 16.9s og erfiðum 17.0s. Bakið ekki alveg nógu hresst í dag þannig að maður sér til hvort að pb í snöru og cleani fái að fjúka upp í dag, ef ekki, þá amk í bekk....


6 Athugasemdir
Arndís María
Dec 12, 2006, 10:16
12 Dec freesshh 09:52

mér finnst að vera vaknaður 9:52 ekki vera að sofa út....

en ég er nottlega soldið spes: )
Dec 12, 2006, 12:27
Redovisa: gera grein fyrir e-h/sýna e-ð
Dec 12, 2006, 13:50
JÆJA ER ÞETTA SPAM DÓT AÐ VIRKA?
Ari
Dec 12, 2006, 13:53
Uss...þetta komst léttilega í gegn.

Smá skoðanakönnun (ekki fyrir þig Raggi). Þeim sem finnst eigandi síðunar ofnota orðin \"basicly\" og \"einhverja\" (í öllum myndum).

Takk fyrir matinn...
Ari
Dec 12, 2006, 13:55
einmitt...þeir eiga að rétta upp hönd...

Kveðja,
lúðinn sem tapaði coolinu í yfirdrulli!
Dec 12, 2006, 18:54
Arndís: \"en ég er nottlega soldið spes\"
Nei Arndís mín, þú ert mjög spes.... ;)

Krissa: nei ekki alveg orðið sem ég er að leita að.

Ari: hehe ok spam vörn og spam vörn, bara reyna að koma amk í veg fyrir þá týpu af spami sem er í gangi í commentkerfinu mínu, tekur sumsé ekki fyrir allt.... ennþá amk..

En góð drulltilraun, og já, ég er sammála þér og rétti því upp hönd, mörg skemmtileg orðin sem ég ofnota :)
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Dec 12, 2006

Klukkan
09:52

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 6

local