Spamshæt

Búið að vera alveg helvíti góður slatti af spami sem hefur verið í gangi á commentdótinu á síðunni minni en held ég hafi náð að setja smá tappa fyrir það í bili, ætti að koma í ljós á næstu dögum, en ef þið lendið í því að commentin ykkar birtast ekki að þá megið þið endilega láta mig vita, þá hafa þau svona óvart lent í spam-filternum.... En amk já, síðasti vinnudagurinn hjá mér í namminu í gær í bili, prófin að koma, íslandsferðin nálgast og svo innanhústímabilið þannig að ekkert svona mesti tími í heimi sem maður hefur í að vinna um helgar, svo bara basicly ekki að nenna því lengur, helvíti leiðinlegt dæmi. Annars róleg æfingahelgi núna, eitthvað krakkamót í húsinu þannig að ekkert hægt að hlaupa þar inni, því neglt xtra á sprettina í síðustu viku og tekin 2ja daga hvíld á helgina sem er velnýtt í lærdóm og aðra vitleysu eins og 25ára afmælisveisla hjá félaga mínum í gær og svoleiðis, en annras bara komið frekar snemma heim eins og fyrri daginn og glápið á Bruce Willis frameftir nóttu :) læra læra


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Dec 10, 2006

Klukkan
13:25

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local