Abu

Það eru nokkrir indverjar með mér í einum kúrsinum sem ég les núna og djöfulli er magnað að heyra þá tala ensku, ok jújú mjög klárir allir í enskunni en hreimurinn er bara algjört æði, hálf vorkenni oft kennaranum þar sem að einn þeirra er alveg mjög virkur að spurja og svara spurningum og ég og nokkrir vinir mínir þarna í tímanum skiljum aldrei hvað hann er að segja og svo sér maður oft kennarann standa þarna á golfinu, klóra sér í hausnum og bara "eeeehhh yeeeesss" Æfingarnar ganga svo bara sinn vanagang, fínasta hlaupaæfing í gær, 2x3x100m(3mín hvíld og 10mín seríuhvíld) og 3x300m (10mín hvíld), og eins og venjulega fannst mér ég vera alveg voðalega þungur í 300m sprettunum eftir nokkra 100m, en náði að halda þeim nokkuð jöfnum samt, 37.9-38.3-37.4, samt enginn dauði neitt, fýlaði mig bara vel þungann eitthvað en svona er þetta með undirbúningstímabilið, maður er svona yfirleitt ekkert alveg beint í sínu ferskarsta að hlaupa á pb á hverri æfingu... En Dogs með Damien Rice.... úffff, me like!!


2 Athugasemdir
Ari
Nov 14, 2006, 14:02
Láttu þá elda mat. Þeir kunna það allavega, ekki mikið annað, allavega þeir sem voru í Skaufa...
Nov 15, 2006, 19:21
Já djöfulsins snilld væri það, get reynt að díla við þá um að kenna þeim eitt nýtt sænsk orð fyrir hverja máltíð sem þeir elda fyrir mig :)
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Nov 14, 2006

Klukkan
08:52

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 2

local