Gotcha

Já, vitiðið hvernig það er hægt að toppa slæma gærdagsmorguninn (hella djúsi yfir hálfa stofuna og setjast í vitlausann sporvagn) ?? Jú það ákvað ég að gera í morgun með því að vera að skrúbba eldhúsið og með ótrúlegum hætti slá niður kaffikönnuna mína, náði reyndar að koma fætinum fyrir, sparka henni ennþá hærra uppíloftið þannig að hún myndi örugglega brotna í öreindir.... ... þannig að núna er ekki hægt að gera kaffi á mínu heimili (eða þangað til að buðirnar opna í fyrramálið, þá verður ný keypt!) En það bjarta með daginn var að ég reddaði mér HJÓLI! já takk fyrir takk, Orri félagi minn bauð mér það gefins þar sem hann var hvort eð er að spá í að henda því, bara með því skilirði að ég þyrfti að ná í það útí rassgat sem ég og gerði og hjólaði heim á hálf bremsulausu hjóli með skakka afturfelgu í úða 6°C, þannig að á morgun verða keypti nokkrir aukahlutir á það og þá held ég að ég verði bara sá svalasti á ferðinni eftir öllum hjólreiðastígunum hérna.


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Nov 05, 2006

Klukkan
17:43

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local