Vondur morgunn?

Byrjaði gærdaginn alveg yndislega þar sem ég vaknaði eldsnemma til að ná að vinna áður en ég tæki brekkuspretti dagsins. Var að fara að fá mér djús með ristuðu brauði þegar ég fattaði að mig vantaði glas, fór inn í eldhús náði í það og datt svo snilldarlega í hug að hrista aðeins djúsinn áður en ég fengi mér. Jújú svosem ekkert af því nema að ég hafði víst opnað fernuna áður en ég náði mér í glasið þannig að þegar ég byrjaði að hrista, mér til varnar var ég ekki með linsurnar í augunum... sé ekkert vel, og fékk því djús yfir hálfa stofuna, vegginn, sjálfann mig og já, fartölvuna, þannig að núna þegar ég skrifa eitthvað skemmtilegt í tölvuna hafa allir takkarnir svona xtra soundfídúsa þegar ég ýti á þá sem segir "ég er klístraður-djús-takki"....... Og svo til að fullkomna þennann morgun að þá þegar ég var búinn að vinna og með morgunmat nr 2 að þá fór ég á æfingu og hitti einn æfingafélaga minn hérna niðri á stoppustöð, vorum við svo uppteknir af því að tala samann að við settumst upp í vitlausann sporvagn sem ók kolvitlaust, þannig að við þurftum að snúa við til að ná þeim rétta... En þrátt fyrir slappa byrjun var dagurinn bara alveg ágætur :) Fór líka í mitt fyrsta nudd í haust á föstudaginn, sem er nottla bara rugl þar sem ég átti að sjálfsögðu að vera búinn að vera þar síðustu 4ar vikur en bara alltaf eitthvað komið uppá. Niðurstaðan: ég er hrikalega stífur frá tám og uppúr, magnað shitt það, þannig að núna er nudd 2x í viku komið á dagskrá út veturinn... Já og mældi mig líka þarna hve feitur ég væri núna, svona vikt sem maður stendur á og leiðir eitthvað blabla í gegnum líkamann og gefur manni fullt af tölum og skemmtilegheitum, amk var fituprósentan 4%, spá í að mæla mig þarna svona 1x í mánuði út veturinn, stemning í því.... En í dag er sunnudagur, 1mánuður og 19dagar í aðfangadag, fékk mínar plús °C um helgina, þarf að fara út í rassgat í dag og hjóla til baka þar sem ég er sennilega að fá mér hjól og og og... já, það er líka djús á músinni minni, magnað shitt það


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Nov 05, 2006

Klukkan
09:42

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local