to early... to fucking dark...

Æi hvað ég er ekki að fíla þetta, myrkur úti þegar maður fer á fætur og svo myrkur úti þegar maður drattast heim af æfingum seint og síðar meir, einu skiptin sem maður nær birtunni er þegar maður skýst út úr skólanum til að kaupa sér kaffibolla, já sumsé búið að vera alveg sæmilega mikið að gera núna, klára hópverkefnið sem tekur basicly allann frítíma manns + að æfa enda síðustu kvöld hef ég alltaf verið sofnaður fyrir kl. 11 og stundum löngu þar á undan... EN nýja sænska ríkisstjórnin er bara alveg að meikaðað, sú gamla var felld fyrir ekki alls löngu og því nýtt fólksem tók við völdunum og hefur það bara hreinlega farið á kostum sína fyrstu daga í vinnunni, fjölmiðlarnir hafa gjörsamlega haldið þeim á hvolfi og tæmt hvern vasa af gömlum syndum og uppúr þeim oltið að einvherjir þeirra hafa víst ekki verið að borga sjónvarpsafnotagjöldin og einhverjir af þeim fannst líka voðalega sniðugt að borga pössunarpíum svart, og afsökunin "Hafði bara ekki efni á að borga þetta í hvítu á þeim tíma" og var þá grafið ennþá dýpra og ef 170milljónir í árslaun hjá þeim hjónakornunum dugir ekki að þá....... já hreinlega veit ég ekki hvað.. En amk, 2 eða 3stk búin að segja af sér og nýji forsetisráðherrann að verða búinn að naga á sér allar neglurnar úr stressi yfir þessum fíflum sem hann fékk í lið með sér, já fussum svei.... EN æfingarnar ganga bara alveg mjög vel, hálf ónýtur eftir fyrstu 2 daga vikunnar þar sem mánudagurinn var svona helvíti magnaður, 3x4x100m sem hljómar nú bara alls ekkert illa, meira að segja 3mín á milli spretta og 12mín á milli setta en þar sem maður er nú svona alveg ágætis keppnismaður... og strákurinn sem ég hljóp með bara alls ekkert minni (nema á hæðina litið) að þá var að sjálfsögðu ekki til í dæminu að láta hinn vera á undan sér yfir marklínuna og því niðurstaðan helvíti hröð æfing, enduðum báður ælandi eftir aðra seríuna (fyrsta skiptið sem ég afreka það eftir bara nokkra 100m spretti) en alveg toppæfing samt, mjög vel hlupið og allt bara á réttri leið. but but but, sturtan og skólinn kalla víst, fyrsta próf á mánudaginn og því bara lærdómur lærdómur og lærdómur sem er málið um helgina en reyni nú samt að vera eitthvað aðeins duglegri inn að skella einhverju inn hérna en ég hef verið undanfarið...


Engin Athugasemd
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Oct 19, 2006

Klukkan
07:39

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 0

local