Barátta fríblaðana

Fyrstu 2 árin sem ég bjó hérna lifði maður góðu og rólegu lífi með eina fríblaðinu hérna í bænum, Metro. En núna bara síðustu vikurnar hefur þessi fríblaðastarfsemi gjörsamlega tekið eitt gott flikk flakk og úr því að vera chill með 1 fríblað að þá eru núna komin 2 í viðbót við gamla góða Metro, City Göteborg og .se minnir mig að hitt heiti. Málið líka með þessi blöð að þetta er ekki borið heim í hús heldur er hægt að pikka þetta upp basicly útum allt og núna þegar baráttan er búin að harðna svona heldur betur að þá er manni ekki orðið óhætt að labba einn niður í bæ, því að þegar maður er í sakleysi sínu á röltinu í leiðinni í skólann ráðast 3 mismunandi áberandi fríblaðadreyfarar á mann og uppi stendur maður hálfnakinn með amk 3stk af hverju blaði og mætir samt 10stk í viðbót sem vilja endilega troða nokkrum í viðbót á mig..... En ef við lítum á björtu hliðarnar að þá fæ ég amk 5stk sudoku á hverjum degi :) En annars skemmtileg æfing í gær, 4x(~300m) brekkusprettir, helvíti gamann að því að upphaflega átti bara að hlaupa 3stk þannig að maður gaf svona xtra vel í síðustu 50m og fékk þessa fínu sýru þegar þjálfarinn minn kemur og segir, "Ragnar og allir sem eru ennþá sæmilega hressir taka 1 sprett í viðbót" þannig að maður bara greeeaaaat, þannig að fyrir síðasta sprettinn var ennþá þessi sæmilega sýra frá þeim 3ja og síðustu 80m var þetta bara hrikalegt, hef aldrei fengið jafn mikla sýru í fucking rassgatið, var alveg jafn vont að standa, sitja og liggja....... en samt var þetta bara gamann.... Hvíld + lærdómur í dag, magnaður skítur það


4 Athugasemdir
Fanney
Oct 09, 2006, 23:44
hahaha... já maður þakkar bara fyrir að fá fríblöðin inn um lúguna hérna á Fróni ;)
Oct 10, 2006, 08:18
hehe já, svona er nú lúxusinn við að búa á höfuðborgarsvæðinu, ekki er svo mikill lúxus útá landi ;)
Oct 10, 2006, 16:32
hey hey. alltof langt síðan ég hef komið hingað inn.

en já já, 300 metra brekkusprettir!! ég veit að okkar brekkusprettir eru ekki svo langir, en nógu andskoti langir! djöfull!

annars bara með kurteisis kvitt:)
sr
Oct 10, 2006, 19:48
já við á landsb erum heppin ef við náum þessum blöðum,,maður þarf helst að stelast úr vinnu til að vera öruggur um að fá eitt eintak,,
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Oct 08, 2006

Klukkan
13:37

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 4

local