Skóli skóli

Jæja, búinn að vera vel latur við að blogga síðustu daga enda góð ástæða fyrir því.... er bara latur! En að öllu gríni slepptu og útí alvöruna að þá er skólinn að byrja núna á eftir, klukkann alltof lítið núna, rétt tæplega hálfátta sem er basicly 5-6klst fyrr heldur en ég hef verið að fara á fætur síðustu daga enda búinn að vera að kynna mér sænskt næturlíf íturlega í þessari æfingapásu minni en eftir vikupásu er hreyfingaþörfin farin að gera verulega mikið vart við sig, sennilega nokkura ára æfingasöfnun farin að gera vart við sig og líkamanum líður hreinlega best hálfdauður með strengi og aðra almenna æfingaþreytu. Bjössi nokkur Margeirsson kom til Gautaborgar í gær og ákvað maður bara að vera grand á þessu og bauð honum bara gistingu hérna í þessa 10 daga sem hann verður hérna alltaf gott að hafa einhvern hérna til að kúra hjá sem getur einnig rifið mann á fætur á morgnanna ;) En skólinn já, allt búið að vera í rugli á netinu og sá hluti heimasíðu skólans sem heldur utanum stundarskrárnar hefur verið í ruglinu um helgina og ekki virkað og því spurning að fara að koma sér uppí skóla og komast að því hvar og hvenær ég á að vera í skólanum í dag, já og svo kanski gott að finna pennaveskið sitt til að hafa með sér :)


2 Athugasemdir
Óskar
Sep 04, 2006, 19:47
Pennaveski!!
Wodda hell, hvaða ár er eiginlega þarna hjá ykkur í Svíþjóð??
Sep 04, 2006, 20:54
haha, þegar maður á gamla tölvu sem lætur það hátt að hún gæti truflað fólkið í næstu stofu verður bara pennaveskið og þarna...... blað að duga....
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Sep 04, 2006

Klukkan
07:48

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 2

local