Sport

Alveg magnaður sunnudagur, frábært veður úti, 25° og glaðasólskin og svo nóg af íþróttum í imbanum eftir kl. 3 í dag þannig að ég eyddi morgninum í sólbað og tók létta æfingu, maður verður víst að reyna að halda brúnkunni við en eins geðveikislega og það hljómar að þá var ég vaknaður klukkan hálfátta í morgun og hreinlega gat ekki sofnað aftur þrátt fyrir að hafa sofnað uppúr 1 leytið í gærnótt, já farið að verða hálf óþolandi að geta ekki nýtt þessa sofa út daga almennilega.. En horfði svo í dag á 3 HM leiki, handboltann þar sem Ísland rúllaði yfir Svíjana og svo á Grand Prix mótið í Englandi þar sem Asafa jafnaði heimsmetið sitt og Gatlins, 9.77 og djöfulli leit þetta vel út hjá honum, dippaði ekki eða neitt þannig að í fullkomnu hlaupi hjá honum held ég að 7.7LOW sé alveg mjög góður möguleiki. Líka gamann að sjá Dwain Chambers aftur á brautinni eftir bannið, var alltaf í miklu uppáhaldi hjá mér áður en upp komst um hann, en vonandi að hann komist aftur í gang, hreinn í þetta sinn, sjáum til. En alveg óþolandi heitt samt hjá mér núna, glugginn búinn að vera opinn í allann dag, lokaði honum rétt áðann og var nálægt því að kafna 5mín síðar þannig að það er allt opið aftur og ef ég blogga ekkert næstu daga að þá hef ég dáið úr hita í nótt og má þá vinsamlegast einhver koma og ná í líkið mitt áður en nágrannarnir fara að kvarta yfir lyktinni. Svo aðeins farinn að spá í mótunum eftir EBikar, get hlaupið 100m og 200m á miðvikudeginum og svo verður kanski 150m og 300m á fimmtudeginum á öðru móti, svo aftur amk 200m, kanski 100m á sunnudeginum, spurning hvað af þessu maður tekur, ekki mikið af 400m núna út mánuðinn en ætti að geta hlaupið alveg allnokkur í júlí þannig að fínt að testa aðeins hraðann núna fyrir það svo maður viti hve hratt maður á að opna fyrstu 200m í næsta 400m.


2 Athugasemdir
A
Jun 12, 2006, 14:12
7.7 segiru...
Ragnar Frosti
Jun 12, 2006, 14:53
æi 7.7 eða 10.7, en alveg viss um að hann hleypur amk 7.7 í 60m :)
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
Jun 11, 2006

Klukkan
23:37

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 2

local