púff og húff

Jæja jæja, amk langt síðann ég hef verið svona þreyttur, en einhvernveginn hefur svefn síðustu 4ra daga farið fjandans til og ég basicly hálfsofandi allann daginn og því málið í kvöld að fara að sofa úbersnemma og sofa út á morgun, en það eru allnokkuðmargar vikur síðan ég gerði það!! Var annars að koma úr prófi núna áðann og ...... jaaaahhhh, viðurkenni alveg að það hefur gengið betur, kæmi mér ekkert á óvart ef þetta dettur vitlausum meginn en held samt í vonina. Næsta próf eftir nákvæmlega viku og ætla ég að taka mér alveg frí frá lærdómi í dag, fer á æfingu eftir klst og ætla svo að taka aðeins til hérna, íbúðin lítur aðeins of mikið prófvikulega út. En Svíþjóð varð heimsmeistari í hockey í gær með B-liðið sitt, en flestar stjörnurnar sem unnu ÓL í vetur eru að spila með liðunum sínum í úrslitakeppninni í USA og því ekki með, ekki slæmt að hafa svona breidd. Fór svo í afmælisveislu á laugardaginn til Dennis sem æfir með mér og horfði þar á Eurovision og söng kareoke, fékk þar enn einu sinni staðfest það sem ég hef alltaf vitað, ég get ekki sungið, en stóð mig reyndar eins og hetja með "Quit playing games with my heart" og náði 85 af 100 mögulegum, en já, önnur lög fóru ekki alveg jafn hátt þrátt fyrir góð tilþrif á köflum. bleeeee hvað þetta er leiðinlegt blogg


3 Athugasemdir
Arnar Már
May 22, 2006, 14:38
Sko hinar þjóðirnar voru líka með B-liðin sín ef ekki bara C [;)]
Ari
May 22, 2006, 17:50
Fyrir utan það að það er ekkert merkilegt að verða heimsmeistari í íshokkí. Þetta er haldið á hverju ári!
Ragnar Frosti
May 23, 2006, 12:33
Heimsmeistari, ekki heimsmeistari, jú andskotinn hafi það það er nú jú pínu merkilegt er þaggi [8D]
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
May 22, 2006

Klukkan
12:56

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 3

local