Nokkrar myndir

Setti inn áðann nokkrar myndir frá Æfingabúðunum inn í Myndir ekkert margar neitt rosalega góðar enda teknar með símanum mínum og ekkert alltof mikið með hann á mér, en amk byrjunin. Koma svo mun fleiri þegar ég fæ nokkur hundruði mynda frá Rafael sem hann safnaði frá öllum sem voru með digital myndavél með sér. En annars búið að vera nóg að gera hjá mér núna, í gær var skóli til fimm og svo beint í smá sjálfboðarvinnu við Vårruset sem er svona konuhlaup hérna í bænum sem klúbburinn stendur fyrir og stóðum við þar sem brautarverðir og pósuðum eins og vitleysingar á meðann 19þúsund konur hlupu framhjá. Tók svo í morgun 3stk netpróf í Datakom kúrsinum (djöfullinn, er einhver helvítis skítur undir s takkanum á lyklaborðinu hjá mér þannig að það kemur ekki alltaf fram, leiðindi leiðindi, ætti að kenna mér að éta ekki ofanáþví..) já tók 3 netpróf í morgun og kláraði þau öll létt bara, bara eitt eftir núna á föstudaginn og svo lokaprófið í því í næstu viku, fékk svo frábærar fréttir í gær í Algoritmer o Datastrukture kúrsinum því að skilaverkefnið fyrir þessa viku og næstu er ekki skilaverkefni, bara verkefni sem er gott að gera þannig að það léttir alveg helvíti mikið á lærdómnum hjá mér og get því einbeitt mér að stóra skilaverkefninu frá síðustu viku. Þannig að.... klára það vonandi á morgun, Lab á föstudaginn og þá er ég bara kominn á réttann stað með flest allt fyrir utan smá lestur sem ég ætti að ná að fixa um helgina þannig að síðasta vikan fyrir prófin (næsta vika) ætti því að sleppa við allt óþarfa stress og vjézen sem er bara snilld. Og í dag keppti ég í fótbolta með kampusinum mínum á móti öðrum skólum hérna úr bænum og var bara helvíti stuð, teypaði báða fæturna fjandans til áður en við byrjuðum til að sleppa við að snúa mig. Við enduðum í 4ða sæti af einhverjum 15liðum en töpuðum í semi-final og svo um 3ja sætið bæði í vítaspyrnukeppni sem er alveg ömurlegt, en ég skoraði úr báðum mínum og get amk glatt mig við það. Og náði held ég minni lélegustu skotnýtingu í þessum 5 leikjum, um 10 skot, 2 í stöngina, eitt var varið og 7 framhjá eða yfir = EKKERT HELVÍTIS MARK!!! En slapp amk við meiðsli sem er jákvætt, annað skiptið sem ég spilaði fótbolta í 6-7 ár held ég, en liðasport er bara ekki mín grej, eftir að hafa verið núna í frjálsum í cirka 7 ár að þá er liðasport núna dautt dæmi!!


2 Athugasemdir
Burkni
May 11, 2006, 12:25
Hvað með boðhlaup og bikarkeppnir?
Ragnar Frosti
May 11, 2006, 21:41
Það er einhvernveginn öðruvísi, þó svo að eftir miklar pælingar er það alveg það sama og liðasport en ég upplifi það amk öðruvísi en helv.. fótbolta
Lokað fyrir fleiri athugasemdir


Dagsetning
May 10, 2006

Klukkan
19:49

Flokkur
http://www.ragnarfrosti.com/blog/category/

Fjöldi athugasemda: 2

local